ÍPS hefur selt nafnaréttinn á Íslandsmótinu í tvímenning í 501 og verður því spilað um FitnessSport meistaratitla í tvímenning 501 á sunnudaginn. Spilað verður bæði á Bullseye og í aðstöðu Píludeildar Þórs og því verða krýndir meistarar bæði fyrir Norðurland og Suðurland. Þátttökurétt hafa allir greiddir meðlimir aðildarfélags sambandsins. Hægt er að gerast meðlimur í einu af okkur aðildarfélögum með því að klára skráningu á dart.is. Húsin opna kl. 09:00 og byrja fyrstu leikir kl. 11:00. Keppt er í karla- og kvennaflokki og eru spilaðir riðlar og fylgir útsláttur í kjölfarið. Sýnt verður frá mótinu í beinni útsendingu á Facebook/Youtube síðu Live Darts Iceland.

Dagskrá

09:00 – Húsið opnar
10:00 – Staðfesting keppenda á staðnum lýkur. Dregið í riðla af handahófi
11:00 – Fyrstu leikir í öllum riðlum hefjast

Hversu margir riðlar, spilafyrirkomulag í riðlum og hve margir komast upp úr riðli fer eftir skráningu. Lágmarksþáttaka eru 4 lið í karla- og kvennaflokki á hverjum stað í Reykjavík og á Akureyri.

Eftir að riðlakeppni lýkur hefst útsláttarkeppni og er spilað eftirfarandi:

Last 64 – Best of 5
Last 32 – Best of 7
Last 16 – Best of 7
Last 8 – Best of 7
Semi finals – Best of 9
Final – Best af 11

Skráningar- og greiðslufrestur er til laugardagsins 24. sept kl. 18:00.

Þátttökugjald er kr. 2.000kr per leikmann (4.000kr per lið)

Eingöngu er hægt að greiða þátttökugjald með millifærslu á
kt. 470385-0819
rn. 0301-26-014567

Hægt er að sjá skráða keppendur með því að smella HÉR

Hægt er að skrá sig hér að neðan: