ÍPS kynnir með stolti í samvinnu við Tryggingar og Ráðgjöf ehf NOVIS deildina í pílukasti. NOVIS deildin er fyrir alla pílukastara sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum sambandsins. Ef þú ert ekki ennþá skráð/ur í aðildarfélag þá getur þú gert það með því að fylla út skráningarformið hægra megin á síðunni.

NOVIS deildin er hönnuð fyrir pílukastara á öllum sviðum íþróttarinnar. Deildirnar eru settar þannig upp að þú færð marga keppnisleiki og alla við leikmenn með svipað getustig. Það skiptir ekki máli hvort þú stefnir á að keppa fyrir landslið Íslands eða ert að taka þín fyrstu skref í pílukasti, þú færð alltaf að keppa við jafninga í íþróttinni og því undir þér komið hvað þú vilt ná langt.

Fjórða umferð verður haldin sunnudaginn 11. september á Bullseye, Snorrabraut 34. Leikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 en húsið opnar kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf allra deilda.

Keppni í Norðuausturdeild NOVIS fer fram í aðstöðu Píludeildar Þórs að Laugargötu 4 Akureyri.

Ef skráning verður mikil gæti þurft að spila einhverjar deildir í aðstöðum pílufélaga sambandsins.

Skráning er hafin í fjórðu umferð og er skráningarfrestur til kl. 18:00 föstudaginn 9. september 2022. Hægt er að skrá sig með því að fylla út formið hér neðst í fréttinni. Skráning er ekki gild fyrr en búið er að greiða þátttökugjald.

Þátttökugjaldið fyrir fjórðu umferð er 3.500kr og er eingöngu hægt að millifæra á:

Kt. 470385-0819
Rn. 0301-26-014567

Fjöldi deilda fer eftir skráningu hverju sinni. Hámarksfjöldi í hverri deild eru 9 manns. Ef skráningar ná ekki uppí 9 keppendur í allar deildir fyrir ákveðna umferð þá gæti þurft að breyta fjölda í hverri deild í þeirri umferð en ávallt verður reynt að hafa 8-9 manns í hverri deild í hverri umferð.

Spilað verður 501, best af 7 leggjum í fjórum efstu deildum í karlaflokki en best af 5 leggjum í öðrum deildum. Í kvennadeild er einnig spilað best af 5. Í Norðaustur deild NOVIS er spilað best af 7 leggjum í efstu deild en best af 5 í öðrum deildum. Allir spila við alla einu sinni og er gefið 1 stig fyrir sigur í hverjum leik. Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild.
Þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í 4. umferð falla niður um amk. 1 deild.

Nánari upplýsingar og regluverk NOVIS deildarinnar má sjá með því að smella HÉR

Keppendum verður raðað í deildir útfrá meðaltali 3. umferðar. Þeir keppendur sem ekki tóku þátt í annarri né þriðju umferð hefja leik í neðstu deild. Meðaltal keppanda eftir þriðju umferð, efstu tveir keppendur í öllum deildum sem hafa tryggt sig upp um amk eina deild og þeir tveir keppndur sem falla niður um amk. 1 deild má sjá með því að smella HÉR

Hægt er að skoða skráða keppendur í fjórðu umferð með því að smella HÉR

Skráning er hér fyrir neðan: