Lengjubikarinn 2019 er 8 móta sería spiluð öll miðvikudagskvöld frá 24. júlí til 11. september til skiptis í Reykjavík og á Suðurnesjum þar sem leikmenn vinna sér inn stig. 4 efstu á þessum stiglista eftir 8 mót vinna sér sæti í Lengjudeildinni 2019! Annað mótið í seríunni verður spilað í aðstöðu Pílufélags Reykjanesbæjar að Keilisbraut 755, Ásbrú. Spilað er 501, beinn útsláttur, best af 7 leggjum alla leið. 1. sæti - 28 stig 2. sæti - 21 stig 3-4. sæti - 15 stig 5-8. sæti - 10 stig 9-16. sæti - 5 stig 17. og neðar - 3 stig Raðað er í mótið eftir stigalista Lengjubikarsins en hann má nálgast á síðunni undir Stigalistar-Lengjubikarinn 2019 Sýnt er beint frá völdum leikjum í Lengjubikarnum á Facebook síðu Live Darts Iceland Þátttökugjald 1.500kr Skráningu lýkur kl. 19:00. Skráning á staðnum eða hér fyrir neðan.