Categories: Fréttir

Uppfært 1.3.2025 – Floridana deildin NA – 3. umferð 2025 – Áætluð deildaskipting

Búið er að uppfæra áætlaða deildarskiptingu. Það urðu smávæginlegar breytingar á henni. (Skjalið hér fyrir neðan er uppfært skjal).

Hér má sjá áætlaða deildaskiptingu fyrir 3. umferð Floridana deildarinnar NA árið 2025.

Fyrirkomulag uppröðunnar er þannig að fyrst er leikmanni raðað útfrá því hvort hann komst upp um deild eða féll niður um deild í síðustu umferð (fyrstu 2 og síðustu 2 sæti). Því næst er nýjasta meðaltal leikmanns notað, þannig getur leikmaður farið upp eða niður um fleiri en eina deild.

ÍPS áskilur sér rétt á að gera breytingar á deildum ef þurfa þykir, t.d. vegna forfalla.

Deildirnar verða spilaðar á eftirtöldum stöðum.

  1. Píluaðstöðu hjá Píludeild Þórs
    Allar deildir

Leikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 (sunnudagur 2. feb.) en húsin opna kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 60 mín. fyrir upphaf allra deilda.

Spilað er 501, best af 7 leggjum í þremur efstu blönduðu deildum en best af 5 leggjum í öðrum deildum. 

Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild og þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í úrslitaumferðinni falla niður um amk. 1 deild.

Hér er áætluð deildarskipting NA – Florida 3. umferð. Uppfært 01.03.2025. 23:00

ipsdart_is

Recent Posts

ÍPS óskar eftir umsóknum í nefndir

Á síðasta píluþingi ÍPS var ákveðið stofnaðar yrði nokkrar nefndir sem hefðu það hlutverk að…

3 days ago

Val á landsliði Íslands fyrir WDF World Cup 2025

Kæru pílukastarar og áhugafólk um íþróttina Búið er að velja landsliðs Íslands sem mun taka…

7 days ago

Íslandsmeistaramót 501 – 2025 – Úrslit.

Íslandsmeistaramótið í 501 var haldið helgina 15-16. mars. Laugardaginn 15. mars var keppt um Íslandsmeistaratitil…

2 weeks ago

Íslandsmótið í pílukasti 2025 – Beinar útsendingar

Hér má finna allar beinar útsendingar Live Darts Iceland frá Íslandsmótinu í pílukasti. Laugardagur -…

4 weeks ago

Íslandsmót 501 – Riðlar klárir – Karlariðlar í einmenning verða spilaðir bæði á Bullseye og PFR.

Búið er að draga í riðla í Íslandsmótinu í Pílukasti 2025. Hægt er að sjá…

4 weeks ago