Búið er að uppfæra áætlaða deildarskiptingu. Það urðu smávæginlegar breytingar á henni. (Skjalið hér fyrir neðan er uppfært skjal).
Hér má sjá áætlaða deildaskiptingu fyrir 3. umferð Floridana deildarinnar RVK árið 2025.
Fyrirkomulag uppröðunnar er þannig að fyrst er leikmanni raðað útfrá því hvort hann komst upp um deild eða féll niður um deild í síðustu umferð (fyrstu 2 og síðustu 2 sæti). Því næst er nýjasta meðaltal leikmanns notað, þannig getur leikmaður farið upp eða niður um fleiri en eina deild.
ÍPS áskilur sér rétt á að gera breytingar á deildum ef þurfa þykir, t.d. vegna forfalla.
Deildirnar verða spilaðar á eftirtöldum stöðum.
Leikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 (sunnudagur 2. feb.) en húsin opna kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 60 mín. fyrir upphaf allra deilda.
Spilað er 501, best af 7 leggjum í þremur efstu blönduðu deildum en best af 5 leggjum í öðrum deildum.
Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild og þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í úrslitaumferðinni falla niður um amk. 1 deild.
Hér er áætluð deildarskipting RVK – Florida 2. umferð. Uppfært 01.03.2025. 23:00.
Í gær, 19.júni, var haldin önnur undankeppni úrvalsdeildarinnar í pílu á Akureyri. 42 leikmenn mættu…
Hér má finna beinar útsendingar Live Darts Iceland frá Píludeild Þórs en þar fer fram…
Fyrr í dag, 14.júni, var haldin fyrsta undankeppni úrvalsdeildarinnar í pílu í Grindavík. 23 leikmenn…
Hér má finna beina útsendingu Live Darts Iceland frá fyrstu undankeppni Úrvalsdeildarinnar í pílukasti sem…
Úrvalsdeildin verður aftur á dagskrá næsta vetur, en í þetta sinn keppa 16 pílukastarar með…