Categories: Fréttir

Floridana kvennadeildir (RVK og NA-deild)

ÍPS byrjar aftur með kvennadeildir í Floridana mótaröðinni.

Á nýju ári ákváðum við að byrja aftur með kvennadeild og er greinilega áhuginn mikill á því þar sem metþáttaka er hjá konum í Floridana deildinni í 1. umferðinni.

Haft er til hliðsjónar upplýsingar og regluverk Floridana deildanna við fyrirkomulag og skipulag kvennadeildanna.  Á meðan við erum að þróa kvennadeildirnar og óvissa er um fjölda kvenna sem munu taka þátt, þá áskilur ÍPS sér þann rétt að breyta fyrirkomulagi, regluverki og stigasöfnun eins og þörf er á með hagsmuni kvennapílunnar á Íslandi að leiðarljósi.

Það er von okkar að efla og breiða út enn frekar kvennapílu á Íslandi og er tilkoma Floridana kvennadeilda einn liður í þessar vegferð okkar.

Það er metþáttaka í 1. Umferð kvennadeildarinnar í RVK (21 konur) sem er frábært. Við ætlum að byrja á svipuðu fyrirkomulagi í RVK og er í Gull og Silfurdeild hjá blönduðu deildunum.

Hér eru nánari upplýsingar um stigasöfnun kvenna og fyrirkomulag á kvennadeildunum. Við erum að byrja á einhverju nýju og við munum þróa þetta á sambærilegan hátt og var gert með blönduðu Floridana deildirnar.

ipsdart_is

Recent Posts

UK2 – Akureyri – Úrvalsdeildin 2025 – Úrslit

Í gær, 19.júni, var haldin önnur undankeppni úrvalsdeildarinnar í pílu á Akureyri. 42 leikmenn mættu…

6 days ago

UK2 – Bein útsending

Hér má finna beinar útsendingar Live Darts Iceland frá Píludeild Þórs en þar fer fram…

1 week ago

UK1 – Grindavík – Úrvalsdeildin 2025 – Úrslit

Fyrr í dag, 14.júni, var haldin fyrsta undankeppni úrvalsdeildarinnar í pílu í Grindavík. 23 leikmenn…

2 weeks ago

UK1 – Grindavík – Bein útsending

Hér má finna beina útsendingu Live Darts Iceland frá fyrstu undankeppni Úrvalsdeildarinnar í pílukasti sem…

2 weeks ago

Úrvalsdeildin í pílukasti 2025 – Þátttökuréttir

Úrvalsdeildin verður aftur á dagskrá næsta vetur, en í þetta sinn keppa 16 pílukastarar með…

3 weeks ago