Fréttir

Íslandsmót Ungmenna 2026 – Dagskrá

Komið er að deginum sem allir ungliðar pílukasts á Íslandi bíða eftir.

Íslandsmót Ungmenna 2026 verður spilað á Bullseye, Snorrabraut 37, 105 Reykjavík á laugardaginn 25. apríl.

Allir flokkar byrja kl. 10:00
Opnum húsið kl. 09:00
Mæta þarf 45 mínútum áður en leikir hefjast.
Útsláttur byrjar kl. 13:00
En við munum vinna með klukkunni og getur þar með ýmislegt breyst þegar kemur að útslætti.

Veitingar verða til sölu á staðnum.
Reynum að virða það.


Við óskum eftir skrifurum eins og til dæmis frà landsliðum okkar og jafnvel hvort aðildarfélög séu með einhverja snillinga sem geta hjálpað til á mótinu.


Við minnum á reglur um fatnað á mótum, en hægt er að skoða fatareglur ÍPS á þessarri slóð –> Reglur um fatnað.
Liðsíþróttatreyjur eru ekki leyfðar  ( t.d eins og fótbolta,körfubolta og handbolta treyjur).


U13 er spilað
Riðlar: Best af 3
Útsláttur: Best af 5
Úrslit: Best af 7

U18 er spilað
Riðlar: Best af 5
Útsláttur: Best af 7
Úrslit: Best af 9


Skráðir keppendur

Viktoría

Recent Posts

Dartung 3. umferð 2026 – Úrslit

Þriðja umferð Dartung deildarinnar 2026 í boði Ping Pong var spiluð í aðstöðu Píludeildar Þórs…

6 days ago

Dartung 3. umferð – Útsending

Hægt er að fylgjast með útsendingum 3. Umferðar Dartung á streymi Live Darts Iceland sem…

1 week ago

Dartung 3. umferð – Dagskrá

Hér að neðan má sjá uppsetta dagskrá en við biðjum þáttakendur að mæta 45 mínútum…

1 week ago

Íslandsmeistarar í pílukasti 2026

Keppt var um helgina 2-3. maí 2026 á Bullseye um Íslandsmeistaratitilinn 2026.Alls tóku þátt 98…

3 weeks ago