UK6 Akranes, síðasta undankeppnin fyrir Úrvalsdeild Stöð 2 Sport 2023, fór fram laugardaginn 27. maí á Akranesi. 26 pílukastarar kepptu um eitt laus sæti í Úrvalsdeild Stöð 2 Sport sem fer fram í haust á Bullseye og að sjálfsögðu í þráðbeinni útsendingu.
Það var hann Lukasz Knapik (PFH) sem tryggði sér sæti í Úrvalsdeildinni í UK6, sjöttu og síðustu undankeppninni fyrir Úrvalsdeildina 2023 þetta vorið. Lukasz sigraði Valþór Atla (Þór) í úrslitaleik 5-0.
Lukasz er 28. pílukastarinn til að tryggja sér sæti í Úrvalsdeildinni þetta árið. 4 síðustu sætin verða valin af landsliðsþjálfurum Íslands í svokölluðu ÍPS vali (Wildcard) og tilkynnt á næstu dögum.
Kristalsdeild 1. Sæti - Vitor Charrua2. Sæti - Alexander Veigar Þorvaldsson3-4. Sæti - Hallgrímur Egilsson3-4.…
Þriðja umferð Dartung deildarinnar 2026 í boði Ping Pong var spiluð í aðstöðu Píludeildar Þórs…
Hægt er að fylgjast með útsendingum 3. Umferðar Dartung á streymi Live Darts Iceland sem…
Hér að neðan má sjá uppsetta dagskrá en við biðjum þáttakendur að mæta 45 mínútum…