Fréttir

Ný regla varðandi skráningu á mót ÍPS

Stjórn ÍPS hefur ákveðið að setja inn nýja reglu varðandi skráningu á mót ÍPS. Reglan snýst um að stjórn ÍPS mun gefa sér vald til þess að aflýsa/fresta móti ef ekki næst lámarks fjöldi keppenda á mót á vegum ÍPS.

Reglan er eftirfarandi:

Lámarks fjöldi keppanda á móti á vegum ÍPS er eftirfarandi: 16 keppendur í einmenningi í karlaflokki, 8 keppendur í einmenningi í kvennaflokki, 8 pör í karlaflokki í tvímenningi og 4 pör í kvennaflokki í tvímenningi. Ef þessi fjöldi er ekki skráður þegar 2 dagar eru í settan lokafrest skráningar áskilur stjórn ÍPS þann rétt að aflýsa mótinu og mun þá stjórn ÍPS reyna að finna nýja dagsetningu fyrir mótið sem var frestað.

Stjórn ÍPS vonar að meðlimir ÍPS geti gefið þessari nýju reglu skilning en við eigum ekki von á því að við munum nokkurntíman eftir að þurfa að virkja hana miða við reynslu síðustu ára.

Kveðja,

Stjórn ÍPS

Júlíus Helgi Bjarnason

Recent Posts

Floridana 3. umferð – Dagskrá

Búið er að raða í riðla fyrir 3. umferð Floridana sem verður haldin á Bullseye,…

9 hours ago

Dartung 2. umferð 2026 – Úrslit

Önnur umferð Dartung deildarinnar 2026 í boði Ping Pong var spiluð í Setrinu að Tangarhöfði,…

4 days ago

Íslandsmeistaramótið í pílukasti – Tvímenningur 2026 – Úrslit

Karladeild 1. sæti - Alexander Veigar Þorvaldsson & Hörður Þór Guðjónsson Hörður Þór Guðjónsson -…

5 days ago

Dartung 2. umferð – Útsending

Hægt er að fylgjast með útsendingum 2. Umferðar Dartung á streymi Live Darts Iceland sem…

5 days ago

Íslandsmeistaramótið í pílukasti -Tvímenningur – Útsending

Hægt er að fylgjast með útsendingum Íslandmeistaramótsins í pílukasti - Tvímenningur á streymi Live Darts…

6 days ago