Fréttir

Riðlar í Grand Prix 2023

Búið er að draga í riðla fyrir Grand Prix 2023 sem fer fram á sunnudaginn nk. á Bullseye. Við minnum á að leikir í öllum riðlum hefjast kl. 10:30 en húsið opnar kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf riðlakeppninnar.

Efstu leikmenn í karla-riðlunum (8) var raðað eftir síðasta meðaltali sínu í NOVIS deildinni. 4 efstu í hverjum riðli fara áfram í 32 manna úrslit í karlaflokki. 4 efstu í kvennariðli fara áfram í undanúrslit.

Í riðlum, bæði karla og kvenna er spilað hefðbundið, best af 5 leggjum. Í útslætti er spilað svokallað set-play. Frá 32 manna til og með 8 manna úrslitum er spilað best af 3 settum. Í undanúrslitum er spilað best af 5 settum og í úrslitaleik best af 7 settum. Hvert sett í útslætti er best af 3 leggjum.

Helgi Pjetur

Recent Posts

Information for Iceland Open/Masters

Dear Participant We look forward to see you at the Icelandic Open/Masters tournament that will…

2 weeks ago

Upplýsingar fyrir Iceland Open/Master

Kæri Keppandi Við hlökkum til að sjá þig Iceland Open/Masters sem fram fer á Bullseye…

2 weeks ago

Brynja og Kolev flott í Færeyjum.

Rúmlega þrjátíu Íslendingar lögðu land undir fót og tóku þátt í Torshavn og Færeyska Open…

1 month ago

3.umferð Flóridana – Skráning

Gulldeildir í RVK og NA fá Kristalsuppfærslu Þriðja umferð Flóridana deildarinnar fer fram sunnudaginn 10.mars…

2 months ago