BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÍPS - Dart.is - ECPv6.15.17.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:ÍPS - Dart.is
X-ORIGINAL-URL:https://dart.is/en
X-WR-CALDESC:Events for ÍPS - Dart.is
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260110T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260110T180000
DTSTAMP:20260409T203250
CREATED:20251129T000233Z
LAST-MODIFIED:20260106T085526Z
UID:19734-1768057200-1768068000@dart.is
SUMMARY:Píluþing Íslenska Pílukastsambandsins 2026
DESCRIPTION:Píluþing Íslenska Pílukastsambandsins fer fram á Akureyri\, Laugardaginn 10. Janúar 2026 (nánari staðsetning verður auglýst síðar)\nFormleg dagskrá þingsins liggur nú fyrir og hefur verið send aðildarfélögum í samræmi við lög ÍPS. \nPÍLUÞING ÍPS 2026\n\nDagskrá og þinggögn\nAkureyri – Laugardagur 10. janúar 2026\nStaðsetning: Hamar við Skarðshlíð\, Akureyri\nKl. 15:00\nMeð vísan til boðunar til Píluþings ÍPS sendir stjórn ÍPS hér með formlega dagskrá þingsins\, í samræmi við lög\nsambandsins. Nánari upplýsingar um fundarstað verða sendar sérstaklega. \nDagskrá Píluþings ÍPS\n1. Þingsetning\n2. Kosning embættismanna þingsins: þingforseta og ritara\n3. Skýrsla stjórnar um störf síðasta árs\n4. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga\n5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga\n6. Reikningar bornir undir atkvæði\n7. Ákvörðun árgjalds\nFUNDARHLÉ\n8. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár\n9. Tillögur um breytingar á lögum og reglugerðum sambandsins\n10. Nefndarálit\, tillögur og atkvæðagreiðslur um þær\n11. Kosning stjórnar samkvæmt 9. grein laga sambandsins\n12. Önnur mál\n13. Þingslit \nStjórn Íslenska Pílukastsambandsins (ÍPS)
URL:https://dart.is/en/vidburdur/piluthing-islenska-pilukastsambandsins-2026/
LOCATION:Píludeild Þórs (PÞ)\, Laugargata 2-4\, Akureyri\, 600\, Iceland
CATEGORIES:Aðalfundir,Píluþing
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://dart.is/wp-content/uploads/2025/04/ips-email-header.webp
ORGANIZER;CN="%C3%8DPS":MAILTO:dart@dart.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20260117
DTEND;VALUE=DATE:20260119
DTSTAMP:20260409T203250
CREATED:20251231T003005Z
LAST-MODIFIED:20260114T170020Z
UID:19747-1768608000-1768780799@dart.is
SUMMARY:Flórídana deildin - 1. Umferð
DESCRIPTION:Um Floridana deildina\nFloridana deildin er fyrir alla pílukastara sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum sambandsins. Ef þú ert ekki núþegar skráð/ur í aðildarfélag þá getur þú gert það með því að fylla út skráningu í ÍPS hér. (ATH þetta er ekki skráning í Floridana deildina\, hún er neðst á þessari síðu.) Floridana deildin er hönnuð fyrir pílukastara á öllum sviðum íþróttarinnar. Deildirnar eru settar þannig upp að þú færð marga keppnisleiki og flesta við leikmenn með svipað getustig. Það skiptir ekki máli hvort þú stefnir á að keppa fyrir landslið Íslands eða ert að taka þín fyrstu skref í pílukasti\, þú færð alltaf að keppa við jafninga í íþróttinni og því undir þér komið hvað þú vilt ná langt. (ATH þeir sem eru að skrá sig í fyrsta skipti eða eru að skrá sig aftur eftir að hafa tekið langt hlé gætu lent á móti leikmönnum sem eru ekki með svipað getustig.) \nStaðsetning\, fyrirkomulag og reglur\n1. umferð Floridana deildarinnar verður haldin laugardaginn  17. Janúar  og sunnudaginn 18. Janúar nk. á Bullseye\, Snorrabraut 37. og í aðstöðu Píludeildar Þórs að Laugargötu. Kristalsdeildin verður haldin á Akureyri í þetta skiptið á laugardeginum en aðrar deildir verða spilaðar á sunnudeginum. \nLeikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 en húsin opna kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf allra deilda. \nEf skráning verður mikil gæti þurft að spila einhverjar deildir í aðstöðum pílufélaga sambandsins. \nFjöldi deilda fer eftir skráningu hverju sinni.  Hámarksfjöldi í hverri deild eru 9 manns að Kristalsdeild og Gulldeildum undanskildum en þar eru 12 manns. Ef skráningar ná ekki uppí 9 keppendur í allar deildir fyrir ákveðna umferð þá gæti þurft að breyta fjölda í hverri deild í þeirri umferð en ávallt verður reynt að hafa 7-9 manns í hverri deild í hverri umferð. \nSpilað er 501\, best af 7 leggjum í þremur efstu deildum en best af 5 leggjum í öðrum deildum.  Í Norðausturdeild er spilað best af 7 leggjum í efstu deild en best af 5 í öðrum deildum. Allir spila við alla einu sinni og er gefið 1 stig fyrir sigur í hverjum leik. Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild og þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í úrslitaumferðinni falla niður um amk. 1 deild. \nNánari upplýsingar og regluverk Floridana deildarinnar má sjá með því að smella HÉR \nSkráningarfrestur er til kl. 16:00 miðvikudaginn 14. Janúar. \n  \nSKRÁÐIR KEPPENDUR
URL:https://dart.is/en/vidburdur/floridana-deildin-1-umferd-2/
CATEGORIES:Flóridana
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dart.is/wp-content/uploads/2025/10/Floridana_logo_WEB_litur_svartur_grunnur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20260131
DTEND;VALUE=DATE:20260201
DTSTAMP:20260409T203250
CREATED:20251231T003723Z
LAST-MODIFIED:20260128T143746Z
UID:19764-1769817600-1769903999@dart.is
SUMMARY:Íslandsmót Öldunga
DESCRIPTION:Íslandsmót öldunga 2026 verður haldið hjá Pílukastfélagi Reykjavíkur að Tangarhöfða 2 laugardaginn 31. janúar.  Húsið opnar kl. 11:00 og hefst mótið kl. 13:00. \nÞátttökurétt á Íslandsmóti öldunga hafa félagsmenn ÍPS sem hafa náð eða verða 50 ára á árinu. Ekki er styrkleikaraðað í þessu móti. \nKeppnisgjald er 4.000 kr. \nSKRÁNING \nSKRÁÐIR KEPPENDUR \nATH\, síðan með skráðum keppendum tekur smá tíma að hlaðast inn. \nSkráningarfrestur rennur út kl. 18:00 fimmtudaginn 29. janúar
URL:https://dart.is/en/vidburdur/islandsmot-oldunga/
CATEGORIES:Íslandsmót
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://dart.is/wp-content/uploads/2025/12/619593806_1978046896406321_4015063411969063328_n.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260131T103000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260131T140000
DTSTAMP:20260409T203250
CREATED:20260106T085950Z
LAST-MODIFIED:20260128T205905Z
UID:19796-1769855400-1769868000@dart.is
SUMMARY:Dartung 1. umferð
DESCRIPTION:Tilkynning frá Stjórn Íslenska Pílukastsambandsins\nVegna metfjölda þátttakenda verðum við að tvískipta Dartung.\nEldri hópurinn sem þú eða barnið þitt er hluti af á að mæta eigi síðar er 12:45.\nÞau byrja að spila þegar yngri hópurinn klárar sitt mót.\nFyrsta umferð DARTUNG 2026 verður haldið í aðstöðu Pílufélags Reykjanesbæjar upp á Ásbrú í Reykjanesbæ laugardaginn 31. janúar. Húsið opnar kl. 09:30 og byrjað verður að spila kl. 10:30. \nAllir pílukastarar á aldrinum 9-18 ára (fæddir 2008-2017) geta tekið þátt í þessari mótaröð en spiluð verða 5 mót á árinu 2026. Stig verða gefin fyrir árangur og 12 mánaða rúllandi stigalisti mun halda utan um árangur allra keppenda. \nStigameistarar í öllum flokkum fá einnig verðlaun eftir mótið. \nMótaröðin verður aldurs- og kynjaskipt ef næg þátttaka fæst og spilaðir verða riðlar + útsláttur. \nDARTUNG verður skipt í aldurshópana 9-13 ára og 14-18 ára. Miðað er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni. \nÞátttökugjald verður 1500 kr. pr. keppanda. \nStig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir: \n1 sæti: 30 stig\n2 sæti: 20 stig\n3.-4. sæti: 15 stig\n5.-8. sæti: 10 stig\n9.-16. sæti: 5 stig \nSKRÁNING \nSKRÁÐIR KEPPENDUR \nATH\, síðan með skráðum keppendum tekur smá tíma að hlaðast inn. \nSkráningarfrestur fyrir DartUng 1 er til kl. 18:00 fimmtudaginn 29. janúar
URL:https://dart.is/en/vidburdur/dartung-1-umferd-2/
CATEGORIES:DARTUNG
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dart.is/wp-content/uploads/2025/10/DARTUNG.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR