Aðal

Ertu búin/n að skrá þig í Íslandsmeistaramótið í pílukasti

Íslandsmeistaramótið í pílukasti 2026 verður haldið helgina 2-3. maí á Bullseye.

Karlaflokkar

Laugardagur:

  • Húsið opnar kl. 09:00.
  • Riðlar hefjast kl. 10:30.

Sunnudagur:

  • Húsið opnar kl. 09:00.
  • Útsláttur hefst kl. 10:00.

Kvennaflokkar

Laugardagur:

  • Húsið opnar kl. 09:00.
  • Riðlar hefjast kl. 10:30.
  • Útsláttur hefst þegar riðlar klárast.

Ef þú ert ekki búin/n að skrá þig þá endilega smelltu á skráninguna hérna fyrir neðan áður en skráningarfresturinn rennur út.

Fyrirkomulag og reglur

Staðsetning: Bullseye Snorrabraut 54.
Dagsetning: Riðlar í karlaflokki, riðlar og útsláttur í kvennaflokki á laugardaginn 2. maí. Útsláttur í karlaflokki sunnudaginn 3. maí.
Tímasetning: Keppnisstaðir opna kl. 09:00, leikir hefjast kl. 10:30, báða dagana.
Staðfesting skráningar: Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf móts, eða fyrir kl. 9:45.
Fyrirkomulag: 501 einmenningur. Spilað verður í riðlum og útslætti.

Leggjafjöldi:
Riðlar: Best af 5
L128: Best af 7 (Ef þátttaka leyfir)
L64: Best af 7
L32: Best af 7
L16: Best af 9
L8: Best af 9
Undanúrslit: Best af 11
Úrslit: Best af 13

Skráningarfrestur:  Fimmtudagur 30. apríl – 18:00
Keppnisgjald: 5.000kr
Styrkleikaröðun:  Já, styrkleikaraðað verður í riðla út frá stigalistum ÍPS.

Dregið verður í riðla kl. 09:45 eða þegar mætingarlisti hefur verið útfylltur.
Vinsamlegast mætið fyrir þann tíma en aðeins nöfn þeirra sem hafa verið merkt verða dregin í riðla.

Hægt er að skrá sig hér fyrir neðan.

Viktoría

Recent Posts

Dartung 3. umferð 2026 – Úrslit

Þriðja umferð Dartung deildarinnar 2026 í boði Ping Pong var spiluð í aðstöðu Píludeildar Þórs…

6 dagar ago

Dartung 3. umferð – Útsending

Hægt er að fylgjast með útsendingum 3. Umferðar Dartung á streymi Live Darts Iceland sem…

1 vika ago

Dartung 3. umferð – Dagskrá

Hér að neðan má sjá uppsetta dagskrá en við biðjum þáttakendur að mæta 45 mínútum…

1 vika ago

Íslandsmeistarar í pílukasti 2026

Keppt var um helgina 2-3. maí 2026 á Bullseye um Íslandsmeistaratitilinn 2026.Alls tóku þátt 98…

3 vikur ago