Categories: Fréttir

Floridana deildin NA – 2. umferð 2025 – Áætluð deildaskipting – Uppfært 23:25 – 7.feb.

Hér má sjá áætlaða deildaskiptingu fyrir 2. umferð Floridana deildarinnar NA árið 2025.

Fyrirkomulag uppröðunnar er þannig að fyrst er leikmanni raðað útfrá því hvort hann komst upp um deild eða féll niður um deild í síðustu umferð (fyrstu 2 og síðustu 2 sæti). Þvínæst er nýjasta meðaltal leikmanns notað, þannig getur leikmaður farið upp eða niður um fleiri en eina deild.

ÍPS áskilur sér rétt á að gera breytingar á deildum ef þurfa þykir, t.d. vegna forfalla.

Deildirnar verða spilaðar á eftirtöldum stöðum.

  1. Akureyri – Aðstöðu Píludeild Þórs
    Gulldeildir karla og kvenna
    Silfurdeild
    Áldeild
    Sinkdeild
    Stáldeild (Búið að færa þau sem voru í Stáldeild í aðrar deildir).
  2. Dalvík – Aðstöðu Pílufélags Dalvíkur
    Bronsdeild
    Kopardeild
    Járndeild
    Blýdeild

Leikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 (sunnudagur 9. feb.) en húsin opna kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 60 mín. fyrir upphaf allra deilda.

Spilað er 501, best af 7 leggjum í þremur efstu blönduðu deildum en best af 5 leggjum í öðrum deildum. 

Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild og þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í úrslitaumferðinni falla niður um amk. 1 deild.

Hér er áætluð deildarskipting NA – Florida 2. umferð. – Uppfært 23:25 7.feb. 2025

ipsdart_is

Recent Posts

Floridana 3. umferð – Dagskrá

Búið er að raða í riðla fyrir 3. umferð Floridana sem verður haldin á Bullseye,…

23 klukkustundir ago

Dartung 2. umferð 2026 – Úrslit

Önnur umferð Dartung deildarinnar 2026 í boði Ping Pong var spiluð í Setrinu að Tangarhöfði,…

5 dagar ago

Íslandsmeistaramótið í pílukasti – Tvímenningur 2026 – Úrslit

Karladeild 1. sæti - Alexander Veigar Þorvaldsson & Hörður Þór Guðjónsson Hörður Þór Guðjónsson -…

6 dagar ago

Dartung 2. umferð – Útsending

Hægt er að fylgjast með útsendingum 2. Umferðar Dartung á streymi Live Darts Iceland sem…

6 dagar ago

Íslandsmeistaramótið í pílukasti -Tvímenningur – Útsending

Hægt er að fylgjast með útsendingum Íslandmeistaramótsins í pílukasti - Tvímenningur á streymi Live Darts…

7 dagar ago