UK4 Bullseye fór fram miðvikudaginn 10. maí á Bullseye Reykjavík en það var Pílufélag Kópavogs sem sá um mótstjórn. 40 pílukastarar kepptu um eitt laus sæti í Úrvalsdeild Stöð 2 Sport sem fer fram í haust á Bullseye og að sjálfsögðu í þráðbeinni útsendingu.
Það var hann Magnús Már Magnússon (PFH) sem tryggði sér sæti í Úrvalsdeildinni í UK4, fjórðu undankeppninni fyrir Úrvalsdeildina 2023 þetta vorið. Magnús sigraði Barða Halldórsson (PKK) í 5-1.
Magnús er 22. pílukastarinn til að tryggja sér sæti í Úrvalsdeildinni þetta árið. 10 síðustu sætin verða í boði í tveimur undankeppnum, Íslandsmótum og ÍPS vali (Wildcard)
Næsta undankeppni fer fram hjá PFR á Tangarhöfða þann 20. maí nk. Nánari upplýsingar og skráning í UK5 Tangarhöfða má finna hér
Búið er að raða í riðla fyrir 3. umferð Floridana sem verður haldin á Bullseye,…
Önnur umferð Dartung deildarinnar 2026 í boði Ping Pong var spiluð í Setrinu að Tangarhöfði,…
Karladeild 1. sæti - Alexander Veigar Þorvaldsson & Hörður Þór Guðjónsson Hörður Þór Guðjónsson -…
Hægt er að fylgjast með útsendingum 2. Umferðar Dartung á streymi Live Darts Iceland sem…
Hægt er að fylgjast með útsendingum Íslandmeistaramótsins í pílukasti - Tvímenningur á streymi Live Darts…