Categories: Meistari Meistaranna

Meistari Meistaranna 2019

Undankeppni Meistari Meistaranna mun fara fram laugardaginn 23. mars 2019 hjá Pílufélagi Reykjanesbæjar og úrslitaleikir karla og kvenna fara fram föstudagskvöldið 5 apríl í BEINNI ÚTSENDINGU kl. 21:00 í sjónvarpssal RÚV.

Fyrirkomulag keppninnar

Hjá körlum skiptast keppendur niður í átta 4 manna riðla í 501 og komast 2 efstu spilararnir í hverjum riðli áfram í 16 manna beinan útslátt. Hjá körlum er spilað best af 7 í riðlakeppni, best af 11 í útslætti alla leið.

Hjá konum verður einn 5 konu riðill og einn 4 konu riðill og 4 efstu í hvorum riðli fara í útslátt. Spilað er best af 5 í riðlakeppni og best af 7 í útslætti alla leið.

Efstu 2 karlmönnum hvers félags á stigalista ÍPS verður raðað. Aðrir leikmenn verða dregnir blint inn í riðla.

Keppnin hefst kl 13.00 þann 23. mars 2019.

Keppnin verður tvískipt. Laugardaginn 23. mars fer riðlakeppnin fram í húsnæði Pílufélags Reykjanesbæjar að Ásbrú og hefst keppnin kl. 13. Föstudaginn 5. apríl verða úrslitaleikir karla og kvenna í beinni útsendingu í sjónvarpssal RÚV að Efstaleiti og hefst keppnin kl. 21:00

Salurinn tekur um 100 manns í sæti og viljum við fá sem flesta til að mæta á staðinn og skapa þannig frábæra stemmningu eins og tíðkast á sambærilega keppnum erlendis.

Lokafrestur fyrir aðildarfélög ÍPS til að senda þátttakendalista síns félags er til miðnættis 20. mars. Útdráttur í riðla fer fram 21. mars.

Eftirfarandi aðildarfélög ÍPS hafa rétt á að senda keppendur:

PFR – Pílukastfélag Reykjavíkur – 8 karlar, 4 konur
PR – Pílufélag Reykjanesbæjar – 8 karlar, 2 konur
PG – Pílufélag Grindavíkur – 8 karlar
Þór Akureyri – 8 karlar, 2 konur
Siglufjörður – 1 kona

ipsdart

Share
Published by
ipsdart

Recent Posts

Floridana deildin – 4. umferð – Áætluð deildaskipting

Hér má sjá áætlaða deildaskiptingu fyrir 4. umferð Floridana deildarinnar árið 2024. Fyrirkomulag uppröðunnar er…

2 dagar ago

Íslandsmót félagsliða 2024 – Úrslit

Íslandsmót félagsliða 2024 fór fram með pompi og prakt síðastliðna helgi í aðstöðu Pílukastfélags Reykjavíkur…

3 vikur ago

WDF World Masters – Boðsmiðar

World Darts Federation (WDF) heldur 3 mót dagana 9-13 október næstkomandi í Búdapest, Ungverjalandi. Mótin…

3 vikur ago

Íslandsmót félagsliða 2024 – Beinar útsendingar

Hér má finna allar útsendingar LiveDartsIceland frá Íslandsmóti félagsliða Laugardagur Streymi 1: Streymi 2: Sunnudagur…

3 vikur ago