Búið er að draga í riðla í Íslandsmótinu í Cricket 2023, bæði í tvímenning og einmenning. Hægt er að sjá riðlaskiptingu hér að neðan.
ATH! Mótastjórn áskilur sér rétt til að draga aftur ef þurfa þykir t.d. vegna forfalla!
Í ár eru fleiri keppendur skráðir en í fyrra þegar mótið fór fram í höfuðborginni. Auk þess eru 5 leikmenn sem kepptu í fyrra að keppa í Finnlandi á sama tíma.
55 keppendur eru skráðir til leiks í einmenning en voru 49 í fyrra. 23 lið eru skráð til leiks í tvímenning en voru aðeins 18 í fyrra.
Mótstaður opnar kl. 09:00 báða dagana og byrjað verður að spila kl. 10:30. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 30 mín fyrir upphaf riðils eða fyrir kl. 10:00
Spilað er best af 5 í riðlakeppnum, best af 7 í útslætti fram að undanúrslitum þar sem spilað er besta af 9 og svo best af 11 í úrslitaleikjum.
Í tvímenning fara 4 lið upp úr hverjum riðli í 16 liða útsláttarkeppni. Í einmenning fara 4 leikmenn upp úr hverjum riðli í 32 manna útsláttarkeppni.
Aðstaða Píludeildar Þórs er í Laugargötu við hlið Sundlaugar Akureyrar. Sjá kort.
Mótstjórn er í höndum Píludeildar Þórs ásamt Stjórn ÍPS til aðstoðar
Við minnum á að almennar keppnisreglur ÍPS gilda á mótinu
Eftirtaldir aðilar munu fá útvegaða boðsmiða fyrir hönd ÍPS á WDF Masters sem haldið verður…
Íslandsmótið í Cricket var spilað nú um helgina í aðstöðu Pílukastfélags Reykjavíkur að Tangarhöfða 2…
Okkur í hefur borist ábendingu um að það gleymdist að setja inn upplýsingar varðandi hvenar…
Stjórn ÍPS hefur ákveðið að breyta tímasetningu á tvímenningum í íslandsmótinu í Cricket sökum fárra…
Stjórn ÍPS vill minna á skráningu á Íslandsmótið í Cricket sem verður haldið í aðstöðu…
Stjórn ÍPS hefur ákveðið að setja inn nýja reglu varðandi skráningu á mót ÍPS. Reglan…