Stigamót 5&6 verða haldin í aðstöðu Pílufélags Reykjanesbæjar, Keilisbraut 755, Ásbrú laugardaginn 7. september. Stigamót 5 hefst kl. 11:00 og hefst stigamót 6 um kl. 15.
Stigamót 7 verður haldið í aðstöðu Pílufélags Reykjanesbæjar sunnudaginn 8. september. Fyrsta Undankeppni Íslandsmóts 2020 verður haldin eftir Stigamót 7. Stigamót 7 hefst kl. 11:00 og Undankeppnin um kl. 15:00.
———
Stigamót ÍPS hafa undanfarin ár verið haldin bæði á Suðurlandi og Norðurlandi fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði. Stigin sem spilarar vinna sér inn á þessum mótum hafa verið notuð til að mynda stigalista ÍPS. Með breyttu fyrirkomulagi á stigalista ÍPS munu stigamótin einnig breytast en hér fyrir neðan koma helstu breytingar.
————–
Fyrsta undankeppnin fyrir Íslandsmótið 2020 verður haldið í aðstöðu Pílufélags Reykjanesbæjar sunnudaginn 8. september.
Þetta er fyrsta undankeppnin af fjórum. 4 efstu karlar í hverri undankeppni komast beint inn í 32 manna útslátt Íslandsmóts 501 árið 2020 og sleppa við riðlakeppni. Eins komast 2 efstu konur í hverri undankeppni beint inn í 16 manna útslátt.
Spilafyrirkomulag í undankeppninni er beinn útsláttur, best af 9 alla leið hjá konum og körlum. Raðað er í undankeppnina eftir stigalista ÍPS.
Þeir aðilar sem tryggja sér þátttökurétt hafa ekki rétt á að taka þátt í fleiri undankeppnum enda hafa þeir þegar tryggt sér þátttökurétt.
Eftir þessar fjórar undankeppnir verða 16 spilarar í karlaflokki og 8 í kvennaflokki sem sleppa við riðlakeppni og er þeim raðað eftir stigalista ÍPS inn í útsláttinn.
3. umferð DartUng mótaraðarinnar í samvinnu við PingPong.is fór fram í aðstöðu Pílukastfélags Reykjavíkur að…
4. umferð Floridana deildarinnar fór fram síðastliðna helgi. Kristalsdeildin lagði land undir fót og var…
Hér má finna allar beinar útsendingar Live Darts Iceland frá Floridana deildinni í pílukasti Sunnudagur…
Hér má sjá áætlaða deildaskiptingu fyrir 4. umferð Floridana deildarinnar árið 2024. Fyrirkomulag uppröðunnar er…