Fréttir

Umsókn fyrir boðsmiða á WDF Masters

WDF World Masters 2025 verður haldið í Ungverjalandi, 29. október – 1. nóvember. ÍPS hefur verið úthlutað 32 boðsmiða í eftirfarandi flokkum.

  • Karlar – 8 sæti
  • Konur – 8 sæti
  • Drengir (U18) – 8 sæti
  • Stúlkur (U18) – 8 sæti

Meðlimir ÍPS er velkomið að sækja um þessa boðsmiða á eftirfarandi slóð:

https://forms.gle/cQMqhUT9VGmegxU4A

Allir meðlimir ÍPS hafa rétt á að sækja um boðsmiða. Stjórn ÍPS mun sjá um að velja þá sem fá boðsmiðana en til viðmiðunar við valið verður skoðað árangur keppenda á mótum ÍPS (stigalista ÍPS) og alþjólegum mótum erlendis.

Umsóknarfresturinn er til 22. júlí. Stjórn ÍPS mun tilkynna hverjir fá boðsmiða 5. ágúst. ÍPS gerir svo þá kröfu á þá sem verða fyrir valinu að vera búin að kaupa flug og tyggja gistingu fyrir 1. september. Ef valdir einstaklingar geta ekki uppfyllt þá kröfu þá gefur stjórn ÍPS sér þann rétt að afturkalla boðsmiðan og bjóða næsta mann/konu á listanum miðann þeirra.

Þetta er gert til að minnka líkur á því sem gerðist í fyrra þar sem tveir mættu ekki á mótið eftir að skráningarfrestur var liðinn. Einnig hefur ÍPS sett þá reglu að ef einstaklingur afturkallar þátttöku eftir að skráningu á WDF Masters er lokið (30. september) þá verður sá sami útilokaður frá umsókn á boðsmiða á næsta WDF Masters.

Júlíus Helgi Bjarnason

Recent Posts

ATH – Íslandsmeistaramótið í Pílukasti frestað vegna veðurs

Tilkynning – Seinkun á viðburði Vegna mjög slæmrar veðurspár hefur stjórn ÍPS ákveðið að fresta…

1 dagur ago

Floridana – 3. Umferð – Úrslit

Kristalsdeild 1. Sæti - Hörður Þór Guðjónsson2. Sæti - Alexander Veigar Þorvaldsson3-4. Sæti - Vitor…

4 dagar ago

Floridana 3. umferð 2026 – Útsending

Hægt er að fylgjast með útsendingum 2. Umferðar Floridana deildarinnar á streymi Live Darts Iceland…

5 dagar ago

Floridana 3. umferð – Dagskrá

Búið er að raða í riðla fyrir 3. umferð Floridana sem verður haldin á Bullseye,…

7 dagar ago