Categories: U18

Unglingamótaröð 2022 – 1 umferð.

Íslenska Pílukastsambandið kynnir með stolti Unglingamótaröð ÍPS og PingPong.is í pílukasti 2021.

Þetta er í fyrsta skiptið sem mótaröð af þessu tagi hefur göngu sína en pílukast hefur verið í gríðarlegum vexti undanfarin misseri og vill ÍPS nýta tækifærið og veita yngstu iðkendum íþróttarinnar möguleika á að koma og keppa á mótaröð sem hentar þeim. Einnig vill ÍPS þakka PingPong.is kærlega fyrir stuðninginn en þeir hafa komið gríðarlega sterkir inn í unglingapíluna og verður gaman að fylgjast með U18 landsliðinu á komandi árum.

Allir pílukastarar á aldrinum 9-18 ára geta tekið þátt í þessari mótaröð en spiluð verða 4 mót á árinu 2022. Stig verða gefin fyrir árangur og 12 mánaða rúllandi stigalisti mun halda utan um árangur allra keppenda. Dagsetningar umferða má finna á heimasíðu sambandsins en fyrsta umferð mótaraðarinnar verður haldin þann 19. febrúar næstkomandi í aðstöðu Pílufélags Reykjanesbæjar að Keilisbraut 755, Ásbrú. Húsið opnar kl. 11:00 og byrjað verður að spila kl. 13:00

Mótaröðin verður aldurs- og kynjaskipt ef næg þátttaka fæst og spilaðir verða riðlar + útsláttur.

1. umferð verður skipt í aldurshópana 9-12 ára og 13-18 ára. Miðast er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni.

Mótaröðin verður sýnd í beinni útsendingu á heimasíðu ÍPS www.dart.is

Stig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir:

1 sæti: 30 stig
2 sæti: 20 stig
3.-4. sæti: 15 stig
5.-8. sæti: 10 stig
9.-16. sæti: 5 stig

Tveimur keppendum sem standa sig vel á mótaröðinni mun einnig gefast kostur á að spila í beinni útsendingu á íslenskri sjónvarpsstöð í vor en nánari upplýsingar um það kemur síðar.

Skráning er hér fyrir neðan og lýkur skráningu föstudaginn 18. febrúar kl. 18:00. Ekkert kostar að taka þátt í unglingamótaröðinni árið 2022 og ekki er gerð krafa að keppendur séu skráðir í aðildarfélag.

Hægt er að sjá skráða keppendur með því að smella HÉR

ipsdart

Recent Posts

Íslandsmótið í pílukasti 2024 – Beinar útsendingar

Hér má finna allar beinar útsendingar Live Darts Iceland frá Íslandsmótinu í pílukasti sem fram…

6 klukkustundir ago

Íslandsmótið í pílukasti – Riðlar

Þá er búið að draga í riðla á Íslandsmótinu í pílukasti sem fram fer sunnudaginn…

2 dagar ago

Úrvalsdeildin í Pílukasti 2024

ÍPS kynnir með stolti Úrvalsdeildina í Pílukasti 2024 en náðst hefur samkomulagi við Stöð 2…

5 dagar ago

Skrifarar óskast á Nordic Cup 2024

Nú er rétt rúmur mánuður í að Norðurlandamót WDF verði haldið á Íslandi en mótið…

2 vikur ago