Íslenska Pílukastsambandið kynnir með stolti Unglingamótaröð ÍPS og PingPong.is í pílukasti 2021.
Þetta er í fyrsta skiptið sem mótaröð af þessu tagi hefur göngu sína en pílukast hefur verið í gríðarlegum vexti undanfarin misseri og vill ÍPS nýta tækifærið og veita yngstu iðkendum íþróttarinnar möguleika á að koma og keppa á mótaröð sem hentar þeim. Einnig vill ÍPS þakka PingPong.is kærlega fyrir stuðninginn en þeir hafa komið gríðarlega sterkir inn í unglingapíluna og verður gaman að fylgjast með U18 landsliðinu á komandi árum.
Allir pílukastarar á aldrinum 9-18 ára geta tekið þátt í þessari mótaröð en spiluð verða 4 mót á árinu 2022. Stig verða gefin fyrir árangur og 12 mánaða rúllandi stigalisti mun halda utan um árangur allra keppenda. Dagsetningar umferða má finna á heimasíðu sambandsins en önnur umferð mótaraðarinnar verður haldin þann 9. apríl næstkomandi í aðstöðu Pílufélags Grindavíkur í Íþróttamiðstöðinni, Austurvegi 1-3, 2. hæð. Húsið opnar kl. 11:00 og byrjað verður að spila kl. 13:00
Mótaröðin verður aldurs- og kynjaskipt ef næg þátttaka fæst og spilaðir verða riðlar + útsláttur.
2. umferð verður skipt í aldurshópana 9-12 ára og 13-18 ára. Miðast er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni.
Mótaröðin verður sýnd í beinni útsendingu á heimasíðu ÍPS www.dart.is
Stig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir:
1 sæti: 30 stig
2 sæti: 20 stig
3.-4. sæti: 15 stig
5.-8. sæti: 10 stig
9.-16. sæti: 5 stig
Tveimur keppendum sem standa sig vel á mótaröðinni mun einnig gefast kostur á að spila í beinni útsendingu á íslenskri sjónvarpsstöð í haust en nánari upplýsingar um það kemur síðar.
Skráning er hér fyrir neðan og lýkur skráningu föstudaginn 8. apríl kl. 18:00. Ekkert kostar að taka þátt í unglingamótaröðinni árið 2022 og ekki er gerð krafa að keppendur séu skráðir í aðildarfélag.
Hægt er að sjá skráða keppendur með því að smella HÉR
Stjórn ÍPS vil vekja athygli að skráning á Dartung 2 er í fullum gangi núna.…
Iceland open og Iceland Masters voru haldin núna um helgina, 26. og 27. apríl. 173…
Við viljum vekja athygli á því að það er Iceland Open/Masters bolir til sölu. Bolirnir…
The Round Robins are here... Below you can see schedules and round robins for both…
Finally the day has arrived and we are proud to present the schedule for the…
Í langan tíma hefur verið rökræður meðal keppenda um fatareglur á mótum og reglur óskýrar,…