Categories: AðalU18

Unglingamótaröð ÍPS og PingPong.is 2022 – 3 umferð.

Íslenska Pílukastsambandið kynnir með stolti Unglingamótaröð ÍPS og PingPong.is í pílukasti 2022.

Þetta er í fyrsta skiptið sem mótaröð af þessu tagi hefur göngu sína en pílukast hefur verið í gríðarlegum vexti undanfarin misseri og vill ÍPS nýta tækifærið og veita yngstu iðkendum íþróttarinnar möguleika á að koma og keppa á mótaröð sem hentar þeim. Einnig vill ÍPS þakka PingPong.is kærlega fyrir stuðninginn en þeir hafa komið gríðarlega sterkir inn í unglingapíluna og verður gaman að fylgjast með U18 landsliðinu á komandi árum.

Allir pílukastarar á aldrinum 9-18 ára geta tekið þátt í þessari mótaröð en spiluð verða 4 mót á árinu 2022. Stig verða gefin fyrir árangur og 12 mánaða rúllandi stigalisti mun halda utan um árangur allra keppenda. Dagsetningar umferða má finna á heimasíðu sambandsins en þriðja umferð mótaraðarinnar verður haldin þann 24. september næstkomandi á Bullseye, Snorrabraut 34. Húsið opnar kl. 10:00 og byrjað verður að spila kl. 11:30

Mótaröðin verður aldurs- og kynjaskipt ef næg þátttaka fæst og spilaðir verða riðlar + útsláttur.

3. umferð verður skipt í aldurshópana 9-12 ára og 13-18 ára. Miðast er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni.

Mótaröðin verður sýnd í beinni útsendingu á heimasíðu ÍPS www.dart.is

Stig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir:

1 sæti: 30 stig
2 sæti: 20 stig
3.-4. sæti: 15 stig
5.-8. sæti: 10 stig
9.-16. sæti: 5 stig

Tveimur keppendum sem standa sig vel á mótaröðinni mun einnig gefast kostur á að spila í beinni útsendingu á íslenskri sjónvarpsstöð í haust en nánari upplýsingar um það kemur síðar.

Skráning er hér fyrir neðan og lýkur skráningu föstudaginn 23. september kl. 18:00. Ekkert kostar að taka þátt í unglingamótaröðinni árið 2022 og ekki er gerð krafa að keppendur séu skráðir í aðildarfélag.

Hægt er að sjá skráða keppendur með því að smella HÉR

ipsdart

Recent Posts

Fyrsta píluþingi lokið – Ný stórn kosin

Fyrsta píluþingi ÍPS lauk í gær um 16:00 en þetta var í fyrsta skipti sem…

5 dagar ago

Landsliðsþjálfari U18 ráðin hjá ÍPS

ÍPS réði Harald Birgisson sem U18 landsliðsþjálfara í dag. Haraldur eða Halli Birgis. eins og…

6 dagar ago

Píluþing ÍPS – 8. mars 2025

Sæl kæru félagsmenn/konur og annað píluáhugafólk. Næstkomandi laugardag 8. mars verður haldið Píluþing ÍPS í…

1 vika ago

Floridana deildin 2025 – 2. og 3. umferð – Úrslit

Önnur og þriðja umferð Floridana deildarinnar fór fram á Bullseye Reykjavík, aðstöðu Pílukastfélags Reykjavíkur og…

1 vika ago

Íslandsmót 501 árið 2025. – Einmenningur og tvímenningur

Um Íslandsmótið 2025 Íslandsmót 501 í pílukasti verður haldið á Bullseye laugardaginn 15. mars (einmenningur)…

1 vika ago