Aðal

Upplýsingar fyrir Iceland Open/Master

Kæri Keppandi

Við hlökkum til að sjá þig Iceland Open/Masters sem fram fer á Bullseye dagana 13-14apríl. Með þessari tilkynningu langar okkur að miðla áfram upplýsingum sem þér gætu gagnast og jafnframt minna á ákveðnar reglur sem fylgja þarf þegar tekið er þátt í WDF móti.

Mótið fer fram á Bullseye, Snorrabraut 32, og opnar húsið kl 09:00 báða dagana.

Á laugardeginum er beinn útsláttur og er spilað best af sjö (Bo7) alla leið fram að úrslitaleik sem verður best af níu (Bo9).

Á sunnudeginum verður spilað í riðlum best af fimm (Bo5) og útslætti best af sjö (Bo7) fram að úrslitaleik sem verður best af níu (Bo9). Riðlakeppni karla verður tvískipt og leikið í tveimur hollum.

Nánara skipulag má finna fyrir neðan.

Reglur:

Seedað verður í mótin skv. Styrkleika lista WDF.

                Styrkleika listi Karla

                Styrkleika listi Kvenna

  • Hlutkesti ákvarðar hvor keppandi kastar fyrir búlli og skal sá keppandi er sigrar búllið hefja leik. Búllið gegnur í gegn. (WDF 12.01)
  • Leikmenn fá að hámarki sex (6) pílur áður en leikur skal hafinn. (WDF 13.01)
  • Leikmenn hafa að hámarki þrjár (3) mínútur til þess að hefja leik eftir að spjald þeirra er tilbúið og ritari og annar þáttakandi hafi merkt sig mætta. Sé leikmaður ekki mættur á línu getur það leitt til þess að leikur dæmist tapaður. (WDF 14.02)*
  • Leikmenn skulu klæðast snyrtilegum klæðnaði. Leikmönnum er óheimlit að bera höfuðfat eða heyrnatól nema af trúar- eða læknisfræðilegum ástæðum. (WDF 16.01-16.03)
  • Fylgi keppandi þessum reglum ekki eftir hefur mótstjórn fullt vald til þess að vísa keppanda frá keppni meti hún þess nauðsyn.(WDF 16.06)
  • Notkun áfengis og vímuefna er óheimil á keppnissvæði og getur leitt til brottvísunar (18.01)
  • Símar og úr skulu vera stillt á silent. Keppendur skulu ekki vera í símanum né ansa í símann á meðan á leik stendur.

* Mótsstjórn mun EKKI ganga á eftir keppendum heldur er það á ábyrgð hvers leikmanns að fylgjast með hvenær og hvar hann á næsta leik. Sjálfsagt er að leita til mótsstjóra sé keppandi ekki viss hvenær hann á næsta leik.

Laugardagur:

Mótið hefst stundvíslega kl 11 og lýkur tilkynningarskyldu kl 10:00. Dregið verður í útslátt rúmlega 10:00.

Leikmenn sem falla úr leik eru skyldugir að skrifa næsta leik á því spjaldi sem þeir léku.

Verðlaunaafhending strax að loknum úrslitaleik í báðum flokkum.

Sunnudagur:

Mótið hefst stundvíslega kl 10 á sunnudagsmorgun. Spilað verður í riðlum og verður riðlum tvískipt hjá körlum. Dráttur í riðla verður birtur á laugardagskvöld ásamt riðlaskipan.

Leikar hefjast í kvenna riðlum og riðlum A-H hjá körlum kl 10:00, tilkynningarskyldu lýkur kl 09:45.

Í riðlum I-P hjá körlum er áætlað að leikar hefjist kl 14:00, tilkynningurskyldu lýkur kl 13:30 og stefnt að því rúlla riðlum af stað eftir því sem fyrra holl klárast.

Keppendur í karlaflokki í riðlum I-P og í öllum riðlum í kvennaflokki sem ekki komast upp úr sínum riðli þurfa að skrifa leik í fyrstu umferð í útslætti.

Áætlað er að útsláttur hefjust kl 18:30 hjá körlum en 17/17:30 hjá konum.

Verðlaunaafhending strax að loknum úrslitaleik í báðum flokkum.

Treyjur:

Ef þú varst búin/n að forpanta treyju á dart.is muntu geta sótt hana á Bullseye.

Treyjan verður til sölu á 8.990kr í stærðum XS – 3XL. Hægt að greiða með bæði korti og reiðufé.

Góða skemmtun og gangi þér vel!

Magnús Gunnlaugsson

Recent Posts

Íslandsmót 501 – Tvímenningur – Úrslit

Íslandsmótið í 501 tvímenning fór fram síðastliðinn sunnudag á Bullseye Reykjavík en um 100 manns…

18 klukkustundir ago

Íslandsmót 501 tvímenningur – Beinar útsendingar

Hér má finna allar beinar útsendingar Live Darts Iceland frá Íslandsmótinu í 501 en í…

2 dagar ago

Floridana deildin – 5. umferð – Úrslit

5. og næstsíðasta umferð Floridana deildarinnar fór fram á Bullseye Reykjavík og í aðstöðu Píludeildar…

2 vikur ago

Floridana deildin – 5. umferð – Beinar útsendingar

Hér má finna allar beinar útsendingar Live Darts Iceland frá Floridana deildinni í pílukasti. Leikir…

2 vikur ago