Úrvalsdeildin verður aftur á dagskrá næsta vetur, en í þetta sinn keppa 16 pílukastarar með svipuðu fyrikomulagi og í fyrra. Allir 16 keppendurnir í Úrvalsdeildinni keppa a.m.k. 2 kvöld í beinni útsendingu en öll kvöldin að úrslitakvöldinu undanskyldu verða leikinn í 8 manna útsláttarfyrirkomulagi eins og í fyrra og vinna leikmenn sér inn stig eftir hvert kvöld.
ATH! ÍPS áskilur sér rétt á að uppfæra fyrirkomulagið eftir þörfum.
Hér að neðan má sjá hvernig hægt er að tryggja sér þátttökurétt í Úrvalsdeildinni. Listinn verður uppfærður um leið og leikmenn tryggja sér þátttökurétt en 12 leikmenn hafa nú þegar tryggt sér rétt til þátttöku í haust. Nánari reglur um þátttökurétt er að finna undir töflunni.
Undankeppnir fara fram í júní og júlí. Allar undankeppnir eru opin mót sem allir félagsmenn í ÍPS geta tekið þátt í. Haldnar verða 4 undankeppnir og verða settar inn tilkynningar um leið og þátttökustaðir og keppnisdagar verða ákveðnir. Ef undankeppni fellur niður eða ekki næst að halda undankeppni af einhverjum ástæðum, færist þátttökurétturinn á efsta leikmann á ÍPS listanum sem ekki hefur þegar tryggt sér þátttökurétt.
Athugasemdir eða spurningar má senda á stjórn á dart@dart.is
Fyrsta umferð Dartung deildarinnar 2026 í boði Ping Pong var spiluð í húsakynnum Pílufélags Reykjanesbæjar…
Íslandsmót öldunga var haldið 18. janúar í húsakynnum Pílukastfélags Reykjavíkur.Samtals tóku 37 manns þátt í…
Vegna met þáttöku á fyrstu umferð Dartung þarf að skipta niður deildum á tíma yfir…
Sunnudagur 18. janúar 2026 Gulldeild kvenna RVK 1. Sæti - Steinunn Dagný Ingvarsdóttir2. Sæti -…