BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ÍPS - Dart.is - ECPv6.15.17.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:ÍPS - Dart.is
X-ORIGINAL-URL:https://dart.is
X-WR-CALDESC:Events for ÍPS - Dart.is
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250302T103000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250302T160000
DTSTAMP:20260410T152818
CREATED:20250224T092416Z
LAST-MODIFIED:20250224T092416Z
UID:17209-1740911400-1740931200@dart.is
SUMMARY:Floridana deildin - 3. umferð
DESCRIPTION:Um Floridana deildina\nFloridana deildin er fyrir alla pílukastara sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum sambandsins. Ef þú ert ekki núþegar skráð/ur í aðildarfélag þá getur þú gert það með því að fylla út skráningu í ÍPS hér. (ATH þetta er ekki skráning í Floridana deildina\, hún er neðst á þessari síðu.) Floridana deildin er hönnuð fyrir pílukastara á öllum sviðum íþróttarinnar. Deildirnar eru settar þannig upp að þú færð marga keppnisleiki og flesta við leikmenn með svipað getustig. Það skiptir ekki máli hvort þú stefnir á að keppa fyrir landslið Íslands eða ert að taka þín fyrstu skref í pílukasti\, þú færð alltaf að keppa við jafninga í íþróttinni og því undir þér komið hvað þú vilt ná langt. (ATH þeir sem eru að skrá sig í fyrsta skipti eða eru að skrá sig aftur eftir að hafa tekið langt hlé gætu lent á móti leikmönnum sem eru ekki með svipað getustig.) \nStaðsetning\, fyrirkomulag og reglur\n2. umferð Floridana deildarinnar verður haldin sunnudaginn 2. mars nk. á Bullseye\, Snorrabraut 37. og í aðstöðu Píludeildar Þórs að Laugargöt \nLeikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 en húsin opna kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf allra deilda. \nEf skráning verður mikil gæti þurft að spila einhverjar deildir í aðstöðum pílufélaga sambandsins. \nFjöldi deilda fer eftir skráningu hverju sinni.  Hámarksfjöldi í hverri deild eru 9 manns að Kristalsdeild og Gulldeildum undanskildum en þar eru 12 manns. Ef skráningar ná ekki uppí 9 keppendur í allar deildir fyrir ákveðna umferð þá gæti þurft að breyta fjölda í hverri deild í þeirri umferð en ávallt verður reynt að hafa 7-9 manns í hverri deild í hverri umferð. \nSpilað er 501\, best af 7 leggjum í þremur efstu deildum en best af 5 leggjum í öðrum deildum.  Í Norðausturdeild er spilað best af 7 leggjum í efstu deild en best af 5 í öðrum deildum. Allir spila við alla einu sinni og er gefið 1 stig fyrir sigur í hverjum leik. Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild og þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í úrslitaumferðinni falla niður um amk. 1 deild. \nNánari upplýsingar og regluverk Floridana deildarinnar má sjá með því að smella HÉR \nSkráningarfrestur í 3. umferð Floridana deildarinnar er til kl. 16:00 miðvikudaginn 26. febrúar. \nSKRÁNING \nSkráðir keppendur \nATH takkinn sem vísar á síðuna með skráðum keppendum tekur smá stund að hlaðast inn
URL:https://dart.is/vidburdur/floridana-deildin-3-umferd-2025/
LOCATION:Bullseye\, Snorrabraut 37\, Reykjavík\, Austurbær\, 105\, Iceland
CATEGORIES:Flóridana
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dart.is/wp-content/uploads/2024/09/1864d9d8-01ef-403e-95f3-74ae6ebb547e-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250309T100000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250309T170000
DTSTAMP:20260410T152818
CREATED:20250301T135111Z
LAST-MODIFIED:20250303T170730Z
UID:17397-1741514400-1741539600@dart.is
SUMMARY:Dartung 1 - 2025
DESCRIPTION:Fyrsta umferð DARTUNG 2025 verður haldið í aðstöðu Pílufélags Reykjanesbæjar upp á Ásbrú í Reykjanesbæ á sunnudaginn 9. mars. Keilisbraut 755\, 262 Reykjanesbæ \nHúsið opnar kl. 10:00 og byrjað verður að spila kl. 11:00. \nAllir pílukastarar á aldrinum 9-18 ára (fæddir 2007-2016) geta tekið þátt í þessari mótaröð en spiluð verða 4 mót á árinu 2025. Stig verða gefin fyrir árangur og 12 mánaða rúllandi stigalisti mun halda utan um árangur allra keppenda. \nStigameistarar í öllum flokkum fá einnig verðlaun eftir mótið. \nMótaröðin verður aldurs- og kynjaskipt ef næg þátttaka fæst og spilaðir verða riðlar + útsláttur. \nDARTUNG verður skipt í aldurshópana 9-13 ára og 14-18 ára. Miðað er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni. \nÞátttökugjald verður 1500 kr. pr. keppanda. \nStig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir: \n1 sæti: 30 stig\n2 sæti: 20 stig\n3.-4. sæti: 15 stig\n5.-8. sæti: 10 stig\n9.-16. sæti: 5 stig \nHægt er að skrá sig núna og það opnast á mánudaginn að sjá “Skráða keppendur”. \nHægt verður að skrá sig til hádegis á föstudaginn 7. mars. \nSKRÁNING \nEf keppendur fara í vitlausan keppnisflokk\, þá verður það lagfært við uppsetningu móts. \nSkráðir keppendur
URL:https://dart.is/vidburdur/dartung-1-2025/
LOCATION:Pílufélag Reykjanesbæjar (PR)\, Keilisbraut 755\, Ásbrú\, Reykjanesbær\, 260\, Iceland
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20250315
DTEND;VALUE=DATE:20250317
DTSTAMP:20260410T152818
CREATED:20250306T083901Z
LAST-MODIFIED:20250306T123519Z
UID:17448-1741996800-1742169599@dart.is
SUMMARY:Íslandsmótið í pílukasti – Einmenningur og tvímenningur
DESCRIPTION:Um Íslandsmótið 2025\nÍslandsmót 501 í pílukasti verður haldið á Bullseye laugardaginn 15. mars (einmenningur) og sunnudaginn 16. mars (tvímenningur). (Ef mikil þátttaka verður\, þá verða einhverjir riðlar spilaðir í PFR. Það verður gefið út eftir að skráningu lýkur). \nSpilaðir verða riðlar og útsláttur í 501. \nVið hvetjum alla til að koma og fylgjast með Íslandsmeistaratitlum fara á loft á besta pílustað í heimi! \nFyrirkomulag og reglur\nStaðsetning: Bullseye Snorrabraut 54. (Mögulega einhverjir riðlar spilaðir í aðstöðu PFR á Tangarhöfða 2).\nDagsetning: Einmenningur á laugardaginn 15. mars og tvímenningur á sunnudaginn 16. mars 2025.\nTímasetning: Mótstaður opnar kl. 09:00\, leikir í riðlum hefjast kl. 11:00.\nStaðfesting skráningar: Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 60 mín fyrir upphaf móts\, eða fyrir kl. 10:00.\nFyrirkomulag: 501 einmenningur. Spilað verður í riðlum og útslætti. \nLeggjafjöldi:\nRiðlar: Best af 5\nL32: Best af 7\nL16: Best af 9\nL8: Best af 9\nUndanúrslit: Best af 11\nÚrslit: Best af 13 \nSkráningarfrestur:  13. mars – 18:00\nKeppnisgjald: 5.000kr\nStyrkleikaröðun:   Já\, styrkleikaraðað verður í riðla út frá stigalistum ÍPS fyrir árið 2025 hjá konunum og út frá rúllandi stigalista hjá körlunum síðustu 12 mánuða. \nSKRÁNING \nSkráðir keppendur
URL:https://dart.is/vidburdur/islandsmot-501-arid-2025-einmenningur-og-tvimenningur/
LOCATION:Bullseye\, Snorrabraut 37\, Reykjavík\, Austurbær\, 105\, Iceland
CATEGORIES:501
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dart.is/wp-content/uploads/2024/05/img_7134.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR