Aðal

DARTUNG3 umfjöllun, myndir og streymi

Það var góð stemning í Reykjanesbæ þegar þriðja umferð DARTUNG fór fram laugardaginn 23. september 2023. 23 keppendur tóku þátt í 4 aldurshópum.

Í flokki stúlkna á aldrinum 13-18 ára sigraði Emilía Rós Hafdal Kristinsdóttir 4-2 í úrslitaleik gegn Nadíu Ósk Jónsdóttur, báðar úr PFH. Í 3. sæti var Birna Rós Daníelsdóttir úr PR. Í flokki drengja á aldrinum 13-18 ára sigraði Gunnar Guðmundsson úr PS 4-1 í úrslitaleik gegn Marel Jónssyni. Í 3.-4. sæti voru Ísak Eldur Gunnarsson úr PKK og Jóhann Fróði Ásgeirsson úr PFH.

Í flokki stúlkna 12 ára og yngri sigraði Íris Harpa Helgadóttir úr PFH í úrslitaleik 2-1 gegn Hrefnu Jónasdóttur úr Þór. Í flokki drengja 12 ára og yngri sigraði Óðinn Hrafn Tómasson úr PR í 3-1 í úrslitaleik gegn Kára Vagni Birkissyni úr PKK. Í 3.-4. sæti voru Marel Högni Jónsson úr PFH og Axel James Wright úr PG.

Unglingalandsliðsþjálfarar Íslands, þau Pétur Rúðrik Guðmundsson og Brynja Herborg voru að sjálfsögðu á staðnum og fylgdust grant með eins og ávallt. Stjórn ÍPS vill þakka styrktaraðila mótsins PingPong.is sérstaklega fyrir ómetanlegan stuðning.

4. og síðasta umferð DARTUNG fer fram laugardaginn 28. október. Skráning hefst ca 7-10 dögum fyrr.Ω

Myndir frá DARTUNG 3

Gunnar Guðmunds (hægri) 1. sæti ásamt Marel Jónssyni 2. sæti
Emilía Rós (hægri) 1. sæti ásamt Nadíu Ósk í 2. sæti
Íris Harpa Helgadóttir – 1. sæti
Óðinn Hrafn Tómasson 1. sæti
Nadía Ósk Jónsdóttir 2. sæti
Kári Vagn Birkisson 2. sæti
Nóg að gera hjá mótastjóra
Hrefna Jónasdóttir (vinstri) 2. sæti ásamt Írisi Hörpu 1. sæti
Ísak Eldur, 3.-4. sæti
Marel Högni og Axel James 3.-4. sæti
Birna Rós Daníelsdóttir 3. sæti
Jóhann Fróði Ásgeirsson 3.-4. sæti

Streymi frá DARTUNG 3

Helgi Pjetur

Recent Posts

Úrvalsdeild 2024 – 16 kastarar, 7 sæti ennþá í boði. Svona tryggir þú þér þátttökurétt

Úrvalsdeildin verður aftur á dagskrá í haust, en í þetta sinn keppa 16 pílukastarar í…

19 klukkustundir ago

Matthías Örn og Brynja Herborg Íslandsmeistarar í pílukasti 2024

Fjölmennasta Íslandsmót frá upphafi var spilað á Bullseye Reykjavík í gær sunnudag en yfir 130…

2 dagar ago

Úrvalsdeildin í Pílukasti 2024

ÍPS kynnir með stolti Úrvalsdeildina í Pílukasti 2024 en náðst hefur samkomulagi við Stöð 2…

1 vika ago

Skrifarar óskast á Nordic Cup 2024

Nú er rétt rúmur mánuður í að Norðurlandamót WDF verði haldið á Íslandi en mótið…

2 vikur ago