Loading Events

« All Events

Dartung 2025 – 3. umferð

13. September kl. 10:00 - 17:00

Þriðja umferð DARTUNG 2025 verður haldið í aðstöðu Píludeildar Þórs, Laugargötu 2-4, á laugardaginn 13. september. Frekari upplýsingar varðaðandi tímasetningar og opnun á skráningu verður sett inn þegar nær dregur en ekki seinna en 3 vikum fyrir mót.

Allir pílukastarar á aldrinum 9-18 ára (fæddir 2007-2016) geta tekið þátt í þessari mótaröð en spiluð verða 4 mót á árinu 2025. Stig verða gefin fyrir árangur og 12 mánaða rúllandi stigalisti mun halda utan um árangur allra keppenda.

Stigameistarar í öllum flokkum fá einnig verðlaun eftir mótið.

Mótaröðin verður aldurs- og kynjaskipt ef næg þátttaka fæst og spilaðir verða riðlar + útsláttur.

DARTUNG verður skipt í aldurshópana 9-13 ára og 14-18 ára. Miðað er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni.

Þátttökugjald verður 1500 kr. pr. keppanda.

Stig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir:

1 sæti: 30 stig
2 sæti: 20 stig
3.-4. sæti: 15 stig
5.-8. sæti: 10 stig
9.-16. sæti: 5 stig

Details

Date:
13. September
Time:
10:00 - 17:00

Organiser

ÍPS
Email
dart@dart.is
View Organiser Website

Venue

Píludeild Þórs (PÞ)
Laugargata 2-4
Akureyri, 600 Iceland
+ Google Map