Keppt var um helgina 2-3. maí 2026 á Bullseye um Íslandsmeistaratitilinn 2026.
Alls tóku þátt 98 karlar og 19 konur.
Á laugardeginu spiluðu mennirnir í 16 riðlum og konurnar spiluðu í 4 riðlum:
Úrslit kvenna voru spiluð á sunnudeginum og var gríðarleg spenna í loftinu meðan spilað var til úrslita.
Ingibjörg Magnúsdóttir og Steinunn Dagný Ingvarsdóttir tókust á um fyrsta sætið og fór leikurinn 7-1, Steinunni í hag.
Karlar byrjuðu að spila riðlakeppni á laugardeginum og eftir stóðu 64 manns sem spiluðu útslátt á sunnudeginum.
Svo fór að Alexander Veigar og Hörður Þór kepptu um fyrsta sætið í karladeildinni en Hörður vann 7-5 eftir hörkuleik milli þessarra tveggja hörkuspilara.
ÍPS vill þakka öllum sem viðkomu að þessarri keppni ásamt Þóri Þórissyni sem tók myndir af mótinu, en myndirnar má sjá hér að neðan, ásamt Facebook síðu ÍPS og Instagram ÍPS.
Stigalistar hafa verið uppfærðir:
Stigalisti Karla
Stigalisti Kvenna
Leaderboard Dartconnect – Íslandsmeistaramótið í pílukasti Dartconnect
Þriðja umferð Dartung deildarinnar 2026 í boði Ping Pong var spiluð í aðstöðu Píludeildar Þórs…
Hægt er að fylgjast með útsendingum 3. Umferðar Dartung á streymi Live Darts Iceland sem…
Hér að neðan má sjá uppsetta dagskrá en við biðjum þáttakendur að mæta 45 mínútum…
Hægt er að fylgjast með útsendingum Íslandsmeistaramótsins í pilukasti 2026 á streymi Live Darts Iceland…