Keppt var um helgina 2-3. maí 2026 á Bullseye um Íslandsmeistaratitilinn 2026.
Alls tóku þátt 98 karlar og 19 konur.

Á laugardeginu spiluðu mennirnir í 16 riðlum og konurnar spiluðu í 4 riðlum:
Úrslit kvenna voru spiluð á sunnudeginum og var gríðarleg spenna í loftinu meðan spilað var til úrslita.
Ingibjörg Magnúsdóttir og Steinunn Dagný Ingvarsdóttir tókust á um fyrsta sætið og fór leikurinn 7-1, Steinunni í hag.

Karlar byrjuðu að spila riðlakeppni á laugardeginum og eftir stóðu 64 manns sem spiluðu útslátt á sunnudeginum.
Svo fór að Alexander Veigar og Hörður Þór kepptu um fyrsta sætið í karladeildinni en Hörður vann 7-5 eftir hörkuleik milli þessarra tveggja hörkuspilara.

ÍPS vill þakka öllum sem viðkomu að þessarri keppni ásamt Þóri Þórissyni sem tók myndir af mótinu, en myndirnar má sjá hér að neðan, ásamt Facebook síðu ÍPS og Instagram ÍPS.

Stigalistar hafa verið uppfærðir:
Stigalisti Karla
Stigalisti Kvenna

Leaderboard DartconnectÍslandsmeistaramótið í pílukasti Dartconnect

Íslandsmeistari karla 2026

Hörður Þór Guðjónsson

Íslandsmeistarinn Hörður Þór Guðjónsson ásamt formanni ÍPS Hallgrími Egilssyni

Íslandsmeistari kvenna 2026

Steinunn Dagný Ingvarsdóttir

Íslandsmeistarinn Steinunn Dagný Ingvarsdóttir

Hægt er að skoða fleiri myndir af mótinu hér að neðan