Íslandsmeistaramótið í Cricket 2026 – Einmenningur og tvímenningur

Íslandsmótið í Cricket verður helgina 20-21. júní í aðstöðu PR, Keilisbraut 755, Ásbrú.
Þátttökurétt hafa allir skráðir félagsmenn aðildarfélaga ÍPS.
Keppt verður í karla- og kvennaflokkum í einmenning og tvímenning.
Dregið verður úr handahófi í riðla kl. 09:45 einungis úr þeim sem eru mættir og hafa staðfest mætingu..
Lokað verður fyrir skráningu klukkan 18:00, föstudaginn 19. júní.
Laugardagurinn 20. júní
Riðlakeppni og útsláttur í tvímenning karla og kvenna.
Húsið opnar kl. 09:00.
Fyrstu riðlar byrja að spila kl. 10:30.
Staðfesta þarf mætingu hjá mótstjórn að lágmarki 45 mín fyrir upphaf mótsins.
Fyrstu leikir í riðlum byrja kl. 10:30.
Best af 5 í riðlakeppni.
Best af 7 í útslætti fram að undanúrslitum en þar er spilað best af 9.
Úrslitaleikir eru best af 11.
Sunnudagur 21. Júní
Riðlakeppni og útsláttur í einmenning karla og kvenna.
Húsið opnar kl. 09:00.
Staðfesta þarf skráningu hjá mótstjórn að lágmarki 45 mín fyrir upphaf riðlakeppni.
Best af 5 í riðlakeppni.
Best af 7 í útslætti fram að undanúrslitum en þar er spilað best af 9.
Úrslitaleikir eru best af 11.
