Floridana deildin – 4. umferð

3.500 kr.

SKU: Flo4 Category:

Description

4. umferð verður haldin sunnudaginn 22. september nk. á Bullseye, Snorrabraut 34. Keppni í Norðuausturdeild Floridana deildarinnar fer fram í aðstöðu Píludeildar Þórs að Laugargötu 4, Akureyri. ATH! Kristalsdeild verður spiluð laugardaginn 21. september í aðstöðu Píludeildar Þórs.

Leikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 en húsið opnar kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf allra deilda.  

Ef skráning verður mikil gæti þurft að spila einhverjar deildir í aðstöðum pílufélaga sambandsins.  

Fjöldi deilda fer eftir skráningu hverju sinni.  Hámarksfjöldi í hverri deild eru 9 manns að Kristalsdeild undanskilinni en þar eru 12 manns. Ef skráningar ná ekki uppí 9 keppendur í allar deildir fyrir ákveðna umferð þá gæti þurft að breyta fjölda í hverri deild í þeirri umferð en ávallt verður reynt að hafa 7-9 manns í hverri deild í hverri umferð.  

Spilað er 501, best af 7 leggjum í þremur efstu deildum en best af 5 leggjum í öðrum deildum.  Í Norðausturdeild er spilað best af 7 leggjum í efstu deild en best af 5 í öðrum deildum. Allir spila við alla einu sinni og er gefið 1 stig fyrir sigur í hverjum leik. Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild og þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í úrslitaumferðinni falla niður um amk. 1 deild.  

Nánari upplýsingar og regluverk Floridana deildarinnar má sjá með því að smella HÉR og nýja fyrirkomulag efstu deilda með því að smella HÉR  

Skráningarfrestur í 4. umferð Floridana deildarinnar er til kl. 18:00 miðvikudaginn 18. september.