Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Floridana deildin – 6. umferð (loka umferð)

9. November kl. 09:00 - 17:00

Um Floridana deildina

Floridana deildin er fyrir alla pílukastara sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum sambandsins. Ef þú ert ekki núþegar skráð/ur í aðildarfélag þá getur þú gert það með því að fylla út skráningu í ÍPS hér. (ATH þetta er ekki skráning í Floridana deildina, hún er neðst á þessari síðu.) Floridana deildin er hönnuð fyrir pílukastara á öllum sviðum íþróttarinnar. Deildirnar eru settar þannig upp að þú færð marga keppnisleiki og flesta við leikmenn með svipað getustig. Það skiptir ekki máli hvort þú stefnir á að keppa fyrir landslið Íslands eða ert að taka þín fyrstu skref í pílukasti, þú færð alltaf að keppa við jafninga í íþróttinni og því undir þér komið hvað þú vilt ná langt. (ATH þeir sem eru að skrá sig í fyrsta skipti eða eru að skrá sig aftur eftir að hafa tekið langt hlé gætu lent á móti leikmönnum sem eru ekki með svipað getustig.)

Staðsetning, fyrirkomulag og reglur

6. umferð Floridana deildarinnar verður haldin sunnudaginn 9. nóvember nk. á Bullseye, Snorrabraut 37. og í aðstöðu Píludeildar Þórs að Laugargötu

Leikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 en húsin opna kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf allra deilda.

Ef skráning verður mikil gæti þurft að spila einhverjar deildir í aðstöðum pílufélaga sambandsins.

Fjöldi deilda fer eftir skráningu hverju sinni.  Hámarksfjöldi í hverri deild eru 9 manns að Kristalsdeild og Gulldeildum undanskildum en þar eru 12 manns. Ef skráningar ná ekki uppí 9 keppendur í allar deildir fyrir ákveðna umferð þá gæti þurft að breyta fjölda í hverri deild í þeirri umferð en ávallt verður reynt að hafa 7-9 manns í hverri deild í hverri umferð.

Spilað er 501, best af 7 leggjum í þremur efstu deildum en best af 5 leggjum í öðrum deildum.  Í Norðausturdeild er spilað best af 7 leggjum í efstu deild en best af 5 í öðrum deildum. Allir spila við alla einu sinni og er gefið 1 stig fyrir sigur í hverjum leik. Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild og þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í úrslitaumferðinni falla niður um amk. 1 deild.

Nánari upplýsingar og regluverk Floridana deildarinnar má sjá með því að smella HÉR

Verðlaunafé fyrir lokaumferðina verður eftirfarandi:
1. sæti Kristalsdeild: 60.000kr
1. sæti Gulldeild RVK og NA: 40.000kr
1. sæti Silfurdeildar RVK og NA: 20.000kr
1. sæti allar aðrar deildir: 10.000kr

Skráningarfrestur er til kl. 16:00 miðvikudaginn 5. nóvember

Details

  • Date: 9. November
  • Time:
    09:00 - 17:00
  • Event Category:

Organiser

Venue