![Loading Events](https://dart.is/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/resources/images/tribe-loading.gif)
- This event has passed.
DARTUNG – 2. umferð
6. April kl. 11:00 - 15:00
![](https://i0.wp.com/dart.is/wp-content/uploads/2024/01/dartung2-event.jpeg?fit=2222%2C1250&ssl=1)
Íslenska Pílukastsambandið kynnir með stolti DARTUNG, Unglingamótaröð ÍPS og PingPong.is í pílukasti 2024.
DARTUNG 2 verður haldið laugardaginn 6. apríl 2024 í aðstöðu Píludeildar Þórs á Akureyri. Húsið opnar kl 10:00 og er áætlað að mótið hefjist kl 11:00.
Allir pílukastarar á aldrinum 9-18 ára (fæddir 2006-2015) geta tekið þátt í þessari mótaröð en spiluð verða 4 mót á árinu 2024. Stig verða gefin fyrir árangur og stigalisti aðgengilegur hér á dart.is. Dagsetningar allra umferða má finna á viðburðasíðu dart.is
Mótaröðin er aldurs- og kynjaskipt og spilaðir eru riðlar + útsláttur.
DARTUNG 2 verður skipt í aldurshópana 9-13 ára og 14-18 ára. Miðað er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni.
Stig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir:
1 sæti: 30 stig
2 sæti: 20 stig
3.-4. sæti: 15 stig
5.-8. sæti: 10 stig
9.-16. sæti: 5 stig