Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

DARTUNG – 2. umferð

6. April kl. 11:00 - 15:00

Íslenska Pílukastsambandið kynnir með stolti DARTUNG, Unglingamótaröð ÍPS og PingPong.is í pílukasti 2024.

DARTUNG 2 verður haldið laugardaginn 6. apríl 2024 í aðstöðu Píludeildar Þórs á Akureyri. Húsið opnar kl 10:00 og er áætlað að mótið hefjist kl 11:00.

Allir pílukastarar á aldrinum 9-18 ára (fæddir 2006-2015) geta tekið þátt í þessari mótaröð en spiluð verða 4 mót á árinu 2024.  Stig verða gefin fyrir árangur og stigalisti aðgengilegur hér á dart.is. Dagsetningar allra umferða má finna á viðburðasíðu dart.is

Mótaröðin er aldurs- og kynjaskipt og spilaðir eru riðlar + útsláttur.

DARTUNG 2 verður skipt í aldurshópana 9-13 ára og 14-18 ára. Miðað er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni.

Stig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir:

1 sæti: 30 stig
2 sæti: 20 stig
3.-4. sæti: 15 stig
5.-8. sæti: 10 stig
9.-16. sæti: 5 stig

 

Details

Date:
6. April
Time:
11:00 - 15:00

Organiser

ÍPS
Email
dart@dart.is
View Organiser Website

Venue

Píludeild Þórs (PÞ)
Laugargata 2-4
Akureyri, 600 Iceland
+ Google Map