- This event has passed.
Íslandsmeistaramótið í pílukasti 2026

Íslandsmeistaramótið í pílukasti 2026
Íslandsmeistaramótið í pílukasti verður haldið á helgina 21. – 22. mars. Karla riðlar verða spilaðir í Pílusetri PFR og í aðstöðu PR á Ásbrú laugardaginn 21. mars. Útsláttur verður síðan á Bullseye sunnudaginn 22. mars. Kvennariðlar og útsláttur verða spilaðir sunnudaginn 22. mars á Bullseye.
Spilaðir verða riðlar og útsláttur í 501.
Við hvetjum alla til að koma og fylgjast með Íslandsmeistaratitlum fara á loft á besta pílustað í heimi!
Fyrirkomulag og reglur
Staðsetning: Bullseye Snorrabraut 54. Pílusetri PFR og í aðstöðu PR á Ásbrú.
Dagsetning: Riðlar á laugardaginn 21. mars og útsláttur sunnudaginn 22. mars.
Tímasetning: Keppnisstaðir opna kl. 09:00, leikir hefjast kl. 10:30, báða dagana.
Staðfesting skráningar: Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf móts, eða fyrir kl. 9:45.
Fyrirkomulag: 501 einmenningur. Spilað verður í riðlum og útslætti.
Leggjafjöldi:
Riðlar: Best af 5
L128: Best af 7 (Ef þátttaka leyfir)
L64: Best af 7
L32: Best af 7
L16: Best af 9
L8: Best af 9
Undanúrslit: Best af 11
Úrslit: Best af 13
Skráningarfrestur: Fimmtudagurinn 19. mars – 18:00
Keppnisgjald: 5.000kr
Styrkleikaröðun: Já, styrkleikaraðað verður í riðla út frá stigalistum ÍPS.
Hægt að skrá sig með því að ýta á viðburðinn hér fyrir neðan.
