Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Dartung 3. umferð

16. May
1500 kr.

Þriðja umferð DARTUNG 2026 verður haldin í aðstöðu Píludeildar Þórs, Laugargötu 2-4, á laugardaginn 16. maí 2026.

Nánari upplýsingar varðandi skipulag og skiptingu mótsins kemur síðar.

Mótaröðin verður aldurs- og kynjaskipt ef næg þátttaka fæst og spilaðir verða riðlar + útsláttur.

DARTUNG er skipt í aldurshópana 9-13 ára og 14-18 ára.
Miðað er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni.

Þátttökugjald verður 1500 kr. pr. keppanda.

Stig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir:

1 sæti: 30 stig
2 sæti: 20 stig
3.-4. sæti: 15 stig
5.-8. sæti: 10 stig
9.-16. sæti: 5 stig

Hægt verður að skrá sig til 18:00 á miðvikudaginn 13. maí .

Ef foreldrar eru að skrá inn systkyni þá má ekki notast við sama e-mail því DartConnect leyfir ekki notkun á sama e-mail á mismunandi leikmönnum.

Ef keppendur fara í vitlausan keppnisflokk, þá verður það lagfært við uppsetningu móts.

Ef koma upp vandamál með skráningu skal senda póst á dart@dart.is og fyrirspurn verður svarað eins fljótt og hægt er.

Almennar spurningar varðandi dartung og annað starf barna og unglingaráðs ÍPS má senda á u18@dart.is

Details

  • Date: 16. May
  • Cost: 1500 kr.
  • Event Category:

Organiser

Venue

  • Píludeild Þórs (PÞ)
  • Laugargata 2-4
    Akureyri, 600 Iceland
    + Google Map