Íslandsmót öldunga var haldið 18. janúar í húsakynnum Pílukastfélags Reykjavíkur.
Samtals tóku 37 manns þátt í mótinu að þessu sinni.
Öldungarmeistari kvenna 2026
Í kvennaflokki vann Sólveig Daníelsdóttir (Pílukastfélagi Reykjavíkur) hana Maríu Emmu Canete (Pílufélag Reykjavíkur) í úrslitaleik og fór leikurinn 6-2.
Öldungarmeistari karla 2026
Í karlaflokki vann Hallgrímur Egilsson (Pílukastfélagi Reykjavíkur) Kristján Sigurðsson (Pílukastfélag Kópavogs) í úrslitaleik og fór leikurinn 6-1.
ÍPS óskar Hallgrími og Sólveigu til hamingju með sigurinn annað árið í röð.





