
Úrvalsdeildin verður aftur á dagskrá í haust, en í þetta sinn verður hún enn stærri og veglegri en í fyrra. Deildin verður tvöfalt stærri í ár en spilaðir verða átta 4 manna riðlar á Bullseye næsta haust í stað fjögurra. Allir leikir verða að sjálfsögðu í þráðbeinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Nánari upplýsingar verða kynntar síðar. ATH! ÍPS áskilur sér rétt á að uppfæra fyrirkomulagið eftir þörfum.
Hér að neðan má sjá hvernig hægt er að tryggja sér þátttökurétt í Úrvalsdeildinni. Listinn verður uppfærður um leið og leikmenn tryggja sér þátttökurétt. Nánari reglur um þátttökurétt er að finna undir töflunni.

Reglur um þátttökurétt:
- Ef leikmaður í 1. sæti RIG (Reykjavík International Games) hefur núþegar tryggt sér þátttökurétt færist plássið í ÍPS val (Wildcard).
- Ef leikmaður í 1. – 7. sæti Gulldeildar – 3. umferð í Novis deildinni hefur núþegar tryggt sér þátttökurétt þá eru næstu sæti sem tekin eru inn í staðinn í eftirfarandi röð:
- 1. sæti – Silfurdeild
- 8. sæti – Gulldeild
Þetta þýðir t.d. að ef Vitor Charrua (sem þegar hefur tryggt sér þátttökurétt) tekur þátt og lendir í 1. – 7. sæti Gulldeildar, 3. umferð NOVIS, þá tryggir 1. sæti í silfurdeild þátttökurétt í Úrvalsdeildinin. Ef fleiri en 2 leikmenn hafa þegar tryggt sér þátttökurétt, þá færast næstu sæti í ÍPS val (Wildcard)
- Ef leikmaður í 1. – 3. sæti Gulldeildar NA – 3. umferð í Novis deildinni hefur núþegar tryggt sér þátttökurétt þá eru næstu sæti sem tekið er inn í staðinn í eftirfarandi röð:
- 4. sæti – Gulldeild NA
- 5. sæti – Gulldeild NA
Ef fleiri en 2 leikmenn hafa þegar tryggt sér þátttökurétt, þá færast næstu sæti í ÍPS val (Wildcard)
- Þrjú bestu meðaltöl kvenna í 3. umferð NOVIS deildar tryggja þátttökurétt í Úrvalsdeild. Meðaltöl gilda í öllum deildum í Reykjavík og Norð-Austur. Ekki verður notast við meðaltöl fyrri umferða NOVIS.
- Ef leikmenn í 1. og 2. sæti í Íslandsmóti karla hafa núþegar tryggt sér þátttökuréttt þá eru næstu sæti sem tekin eru í staðin 3. og 4. sæti í Íslandsmóti. Ef þau sæti hafa líka áður tryggt sér þátttökurétt bætist viðeigandi fjöldi plássa við ÍPS val (Wildcard)
- Ef leikmenn í 1. og/eða 2. sæti í Íslandsmóti kvenna hafa núþegar tryggt sér þátttökuréttt þá tryggir 3. sæti í íslandsmóti þátttökurétt. Ef 3. sætið hefur líka áður tryggt sér þátttökurétt bætist viðeigandi fjöldi plássa við ÍPS val (Wildcard)
- Ef Íslandsmeistari U18 hefur þegar tryggt sér þátttökurétt þá er næsta sæti sem tekið er inn 2. sæti í Íslandsmóti U18. Ef 2. sætið hefur líka áður tryggt sér þátttökurétt bætist viðkomandi pláss í ÍPS val (Wildcard)
- Ef Stigameistari U18 karla hefur núþegar tryggt sér þátttökurétt færist plássið í ÍPS val (Wildcard)
Undankeppnir:
Undankeppnir fara fram eftir 26. mars (eftir 3. umferð NOVIS deildar) og fyrir 15. ágúst (þannig að tími sé til að taka myndir af leikmönnum fyrir kynningarefni). Allar undankeppnir eru opin mót sem allir félagsmenn í ÍPS geta tekið þátt í. Leikmenn sem hafa núþegar tryggt sér sæti í gegnum NOVIS eða Íslandsmót mega ekki taka þátt í þessum sérstöku undankeppnum aðildarfélaga.
Stefnt er að því að halda 6 undankeppnir (3 á höfuðborgarsvæðinu og 3 á landsbyggðinni). Ef undankeppni fellur niður eða ekki næst að halda undankeppni af einhverjum ástæðum, færast þátttökusæti í ÍPS val.
ÍPS val:
ÍPS val (Wildcard) eru sæti sem landsliðsþjálfarar ÍPS velja úr hópi leikmanna sem ekki hafa tryggt sér þáttökurétt í gegnum ÍPS mótin eða undankeppnir aðildarfélaga. Þau sæti verða tilkynnt þann 16. ágúst 2023.
Í upphafi er um tvö pláss að ræða en líklegt þykir að þeim fjölgi upp í þrjú til fjögur pláss eftir því sem líður á árið ef leikmenn sem hafa þegar tryggt sér þátttökurétt lenda í þátttökurétts-sætum í öðrum mótum.
Athugasemdir eða spurningar má senda á stjórn á dart@dart.is