Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Floridana deildin – 3. umferð

10. March 2024 kl. 10:30 - 17:00

Um Floridana deildina

Floridana deildin er hönnuð fyrir pílukastara á öllum sviðum íþróttarinnar. Deildirnar eru settar þannig upp að þú færð marga keppnisleiki og flesta við leikmenn með svipað getustig. Það skiptir ekki máli hvort þú stefnir á að keppa fyrir landslið Íslands eða ert að taka þín fyrstu skref í pílukasti, þú færð alltaf að keppa við jafninga í íþróttinni og því undir þér komið hvað þú vilt ná langt. Aðeins pílukastarar sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum sambandsins geta tekið þátt í Floridana deildinni.

Skráningu lýkur kl 18:00 miðvikudaginn 6. mars.

 

Staðsetning, fyrirkomulag og reglur

3. umferð verður haldin sunnudaginn 10. mars nk. á Bullseye, Snorrabraut 34.  Keppni í Norðausturdeild Floridana deildarinnar fer fram í aðstöðu Píludeildar Þórs að Laugargötu 4, Akureyri. Leikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 en húsin opna kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf allra deilda.  Ef skráning verður mikil gæti þurft að spila einhverjar deildir í aðstöðum pílufélaga sambandsins.

Fjöldi deilda fer eftir skráningu hverju sinni.  Hámarksfjöldi í hverri deild eru 9 manns að Kristalsdeild undanskilinni en þar eru 12 manns. Ef skráningar ná ekki uppí 9 keppendur í allar deildir fyrir ákveðna umferð þá gæti þurft að breyta fjölda í hverri deild í þeirri umferð en ávallt verður reynt að hafa 7-9 manns í hverri deild í hverri umferð.

Spilað er 501, best af 7 leggjum í þremur efstu deildum en best af 5 leggjum í öðrum deildum.  Í Norðausturdeild er spilað best af 7 leggjum í efstu deild en best af 5 í öðrum deildum. Allir spila við alla einu sinni og er gefið 1 stig fyrir sigur í hverjum leik. Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild og þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í úrslitaumferðinni falla niður um amk. 1 deild.

Nýtt fyrirkomulag efstu deilda – Kristals- og Gulldeildir

Stjórn ÍPS hefur ákveðið að gera fyrirkomulagsbreytingar á efstu deildum Floridana deildarinnar sem tók gildi í fyrstu umferð. Einnig verða teknir í notkun nýjir stigalistar ÍPS.  Reglurverk Floridana og nánari upplýsingar um þessar breytingar hér.

Þátttökugjald er 3.500kr og er hægt að greiða með greiðslukorti eða ApplePay

ATH! Til að auðvelda utanumhald þá biðjum við keppendur að skrá sig með nákvæmlega sama nafni og kemur fram á Meðaltalslista 2024, sjá HÉR

Skráðir keppendur:

Kristalsdeild

Reykjavík

Norðausturland

#Nafn Aðildarfélag Avg
1Snorri GunnlaugssonPíludeild Völsungs37,15
2Benedikt HelgasonPíludeild Þórs (PÞ)55,22
3Einar Helgi GunnarssonPíludeild Þórs (PÞ)47,78
4Ágúst Örn VilbergssonPíludeild Þórs (PÞ)65,33
5Árni Gísli MgnússonPíludeild Þórs (PÞ)53,02
6Thanh Viet NguyenPíludeild Þórs (PÞ)44,89
7Jón ÓlafssonPíludeild Þórs (PÞ)46,33
8Kristófer JósefssonPíludeild Þórs (PÞ)43,18
9Geisli HreinssonPíludeild Þórs (PÞ)37,77
10Ásgeir Þór ÁsgeirssonPíludeild Þórs (PÞ)44,50
11Valur SigurgeirssonPíludeild Þórs (PÞ)61,37
12Friðrik GunnarssonPíludeild Þórs (PÞ)59,24
13Vidar ValdimarssonPíludeild Þórs (PÞ)62,91
14Gunnþór Eyfjörð GunnþórssonPílufélag Dalvíkur (PD)47,75
15Jón SæmundssonPílufélag Dalvíkur (PD)59,26
16Ægir Eyfjörð GunnþórssonPílufélag Dalvíkur (PD)54,51
17Sigurður SölvasonPílufélag Dalvíkur (PD)55,98
18Axel James WrightPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)67,47
19Brynja HerborgPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)52,06
20Júlíus Helgi BjarnasonPílukastfélag Skagafjarðar (PKS)44,89
21Jón Oddur HjálmtýssonPílukastfélag Skagafjarðar (PKS)58,37
22Einar GíslasonPílukastfélag Skagafjarðar (PKS)67,26
23Daníel CekicPíluklúbbur Austurlands (PKA)51,34
24Andri Dagur SigurjònssonPíluklúbbur Austurlands (PKA)62,64
25Hörður HaraldssonPíluklúbbur Austurlands (PKA)41,52
26Sigurþór MárPíluklúbbur Austurlands (PKA)
27Þórir Rúnar ValgeirssonPíluklúbbur Austurlands (PKA)
#Nafn Aðildarfélag Avg

Details

  • Date: 10. March 2024
  • Time:
    10:30 - 17:00
  • Event Category:

Organiser

Venue