Floridana deildin er fyrir alla pílukastara sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum sambandsins. Ef þú ert ekki núþegar skráð/ur í aðildarfélag þá getur þú gert það með því að fylla út skráningu í ÍPS hér. (ATH þetta er ekki skráning í Floridana deildina, hún er neðst á þessari síðu.) Floridana deildin er hönnuð fyrir pílukastara á öllum sviðum íþróttarinnar. Deildirnar eru settar þannig upp að þú færð marga keppnisleiki og flesta við leikmenn með svipað getustig. Það skiptir ekki máli hvort þú stefnir á að keppa fyrir landslið Íslands eða ert að taka þín fyrstu skref í pílukasti, þú færð alltaf að keppa við jafninga í íþróttinni og því undir þér komið hvað þú vilt ná langt. (ATH þeir sem eru að skrá sig í fyrsta skipti eða eru að skrá sig aftur eftir að hafa tekið langt hlé gætu lent á móti leikmönnum sem eru ekki með svipað getustig.)
Nýtt fyrirkomulag efstu deilda
Stjórn ÍPS hefur ákveðið að gera fyrirkomulagsbreytingar á efstu deildum Floridana deildarinnar og taka þær gildi strax í fyrstu umferð, 14. janúar. Einnig verða teknir í notkun nýjir stigalistar ÍPS. Nánari upplýsingar um þessar breytingar hér.
Staðsetning, fyrirkomulag og reglur
Lokaumferðin verður haldin sunnudaginn 8. desember nk. á Bullseye, Snorrabraut 34. Keppni í Norðuausturdeild Floridana deildarinnar fer fram í aðstöðu Píludeildar Þórs að Laugargötu 4, Akureyri. Leikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 en húsið opnar kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf allra deilda. Ef skráning verður mikil gæti þurft að spila einhverjar deildir í aðstöðum pílufélaga sambandsins.
Fjöldi deilda fer eftir skráningu hverju sinni. Hámarksfjöldi í hverri deild eru 9 manns að Kristalsdeild undanskilinni en þar eru 12 manns. Ef skráningar ná ekki uppí 9 keppendur í allar deildir fyrir ákveðna umferð þá gæti þurft að breyta fjölda í hverri deild í þeirri umferð en ávallt verður reynt að hafa 7-9 manns í hverri deild í hverri umferð.
Spilað er 501, best af 7 leggjum í þremur efstu deildum en best af 5 leggjum í öðrum deildum. Í Norðausturdeild er spilað best af 7 leggjum í efstu deild en best af 5 í öðrum deildum. Allir spila við alla einu sinni og er gefið 1 stig fyrir sigur í hverjum leik. Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild og þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í úrslitaumferðinni falla niður um amk. 1 deild.
Nánari upplýsingar og regluverk Floridana deildarinnar má sjá með því að smella HÉR og nýja fyrirkomulag efstu deilda með því að smella HÉR
Skráning í lokaumferð hefst í lok nóvember
Vefsíðan okkar notar vefkökur (e. cookies) til að tryggja sem besta upplifun á vefsíðunni fyrir notendur. Vefkökur hjálpa okkur að bæta vefsíðuna og veita notendum góða þjónustu þegar vafrað er á síðunni. Upplýsingarnar sem safnast saman eru nafnlausar og ekki er hægt að nota þær til að auðkenna þig. Með áframhaldandi notkun á síðunni samþykkir þú notkun okkar á vefkökum. Cookie settingsSamþykkja
Privacy & Cookies Policy
Privacy Overview
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these cookies, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may have an effect on your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.
Any cookies that may not be particularly necessary for the website to function and is used specifically to collect user personal data via analytics, ads, other embedded contents are termed as non-necessary cookies. It is mandatory to procure user consent prior to running these cookies on your website.