- This event has passed.
ÍPS deildin – úrslitaumferð
29. October 2023 kl. 10:30 - 17:00
Um ÍPS deildina
ÍPS deildin er fyrir alla pílukastara sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum sambandsins. Ef þú ert ekki núþegar skráð/ur í aðildarfélag þá getur þú gert það með því að fylla út skráningu í ÍPS hér. (ATH þetta er ekki skráning í ÍPS deildina, hún er neðst á þessari síðu.)
ÍPS deildin er hönnuð fyrir pílukastara á öllum sviðum íþróttarinnar. Deildirnar eru settar þannig upp að þú færð marga keppnisleiki og flesta við leikmenn með svipað getustig. Það skiptir ekki máli hvort þú stefnir á að keppa fyrir landslið Íslands eða ert að taka þín fyrstu skref í pílukasti, þú færð alltaf að keppa við jafninga í íþróttinni og því undir þér komið hvað þú vilt ná langt. (ATH þeir sem eru að skrá sig í fyrsta skipti eða eru að skrá sig aftur eftir að hafa tekið langt hlé gætu lent á móti leikmönnum sem eru ekki með svipað getustig.)
Verðlaunafé í úrslitaumferð
Verðlaunafé fyrir lokaumferðina er rétt tæplega 300 þús krónur sem skiptist á milli deilda og landsvæða. Efstu þrjár deildir á hvoru landsvæði skipta með sér um 60% af verðlaunafé (hæst í gull o.s.frv.). 40% skiptist jafnt á aðrar deildir. Nánari upplýsingar um verðlaunafé verður því tilkynnt þegar mæting liggur fyrir.
Verðlaunafé er veitt í formi inneignar hjá ÍPS sem keppendur geta nýtt til þess að skrá sig í ÍPS mót.
Staðsetning, fyrirkomulag og reglur
Úrslitaumferðin (6. umferð) verður haldin sunnudaginn 29. október nk. á Bullseye, Snorrabraut 34. Keppni í Norðuausturdeild ÍPS deildarinnar fer fram í aðstöðu Píludeildar Þórs að Laugargötu 4, Akureyri. Leikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 en húsið opnar kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf allra deilda. Ef skráning verður mikil gæti þurft að spila einhverjar deildir í aðstöðum pílufélaga sambandsins.
Fjöldi deilda fer eftir skráningu hverju sinni. Hámarksfjöldi í hverri deild eru 9 manns. Ef skráningar ná ekki uppí 9 keppendur í allar deildir fyrir ákveðna umferð þá gæti þurft að breyta fjölda í hverri deild í þeirri umferð en ávallt verður reynt að hafa 7-9 manns í hverri deild í hverri umferð.
Spilað er 501, best af 7 leggjum í þremur efstu deildum í karlaflokki en best af 5 leggjum í öðrum deildum. Í öllum kvennadeildum er einnig spilað best af 5. Í Norðausturdeild er spilað best af 7 leggjum í efstu deild en best af 5 í öðrum deildum. Allir spila við alla einu sinni og er gefið 1 stig fyrir sigur í hverjum leik. Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild og þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í úrslitaumferðinni falla niður um amk. 1 deild.
Nánari upplýsingar og regluverk ÍPS deildarinnar má sjá með því að smella HÉR
Keppendum er raðað í deildir út frá meðaltali, nema í Gulldeild RVK þar sem einungis er hægt að tryggja sér sæti í henni með því að lenda í fyrsta eða öðru sæti silfurdeildar. Meðaltal þeirra keppenda sem mæta ekki umferð lækkar um 5%.
Meðaltal keppanda eftir 5. umferð, efstu tveir keppendur í öllum deildum sem hafa tryggt sig upp um amk eina deild og þeir tveir keppendur sem falla niður um amk eina deild má sjá hér að neðan.
Heildarmeðaltal ÍPS deildarinnar 2023
Skráning & greiðsla
Skráning er hafin og ATH! skráningarfrestur er til kl. 18:00, miðvikudaginn 25. október 2023. Hægt er að skrá sig með því að fylla út formið hér að neðan. Skráning er ekki gild fyrr en búið er að greiða þátttökugjald. Ef þátttökugjald er ekki greitt á réttum tíma bætist við 500kr refsigjald.
Þátttökugjald er 3.500 kr. og er eingöngu hægt að millifæra á: Kt. 470385-0819 Reikningsnúmer: 0301-26-014567 Vinsamlegast sendu kvittun fyrir greiðslu á dart@dart.is
Ef þú átt inneign og vilt nýta hana sendu okkur póst á dart@dart.is. Hægt er að skoða inneignarstöðuna HÉR
Reglur um afskráningu í mótum ÍPS, endurgreiðslur og inneignir er hægt að skoða HÉR
Skráðir keppendur
ATH! Greiðslustaða uppfærist ekki í rauntíma. ÍPS reynir eftir fremsta megni að uppfæra hana á amk 24 klst fresti.
ÍPS deildin – Reykjavík
ÍPS deildin – Norð-austurland