
Grand Prix 2025
17. May kl. 09:00 - 17:00
4000 kr.Um Grand Prix
Grand Prix 2025 verður haldið laugardaginn 17. maí 2025 í aðstöðu PFR að Tangarhöfða 2. Allir pílukastarar sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum ÍPS geta skráð sig í mótið.
Ef þú ert ekki núþegar skráð/ur í aðildarfélag þá getur þú gert það með því að fylla út skráningu í ÍPS hér. (ATH þetta er ekki skráning í Grand Prix, hún er neðst á þessari síðu.)
Staðsetning, fyrirkomulag og reglur
Spilað verður 501 einmenningur, DIDO (Double-in, Double-out) í riðlum og útslætti en spilafyrirkomulag ræðst af fjölda þátttakenda. Keppt verður bæði í karla- og kvennaflokki. Stefnt er að því að spila svokallað “setplay” í útslætti en nánara fyrirkomulag verður kynnt þegar skráningarfjöldi liggur fyrir.
Leikir í öllum riðlum hefjast kl. 10:30 en húsið opnar kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf riðlakeppninnar.
Styrkleikaraðað verður í riðla og verður farið eftir stigalista ÍPS.
Verðlaunafé (bæði í karla- og kvennaflokki) fyrir fyrsta sæti er 20.000 kr. Fyrir annað sæti 10.000 kr. og þriðja sæti 5.000 kr.
Skráning & greiðsla
Skráning er hafin og skráningarfrestur er til kl. 12:00 (hádegi), fimmtudaginn 15. maí 2025.
Reglur um afskráningu í mótum ÍPS, endurgreiðslur og inneignir er hægt að skoða HÉR