Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

NOVIS deildin – Úrslit

13. November 2022 kl. 09:00 - 18:00

3.500 kr.

ÍPS kynnir með stolti í samvinnu við Tryggingar og Ráðgjöf ehf NOVIS deildina í pílukasti. NOVIS deildin er fyrir alla pílukastara sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum sambandsins. Ef þú ert ekki ennþá skráð/ur í aðildarfélag þá getur þú gert það með því að fylla út skráningarformið hægra megin á síðunni.

NOVIS deildin er hönnuð fyrir pílukastara á öllum sviðum íþróttarinnar. Deildirnar eru settar þannig upp að þú færð marga keppnisleiki og alla við leikmenn með svipað getustig. Það skiptir ekki máli hvort þú stefnir á að keppa fyrir landslið Íslands eða ert að taka þín fyrstu skref í pílukasti, þú færð alltaf að keppa við jafninga í íþróttinni og því undir þér komið hvað þú vilt ná langt.

Úrslitaumferðin verður haldin sunnudaginn 13. nóvember á Bullseye, Snorrabraut 34. Leikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 en húsið opnar kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf allra deilda.  Keppni í Norðausturdeild NOVIS fer fram í aðstöðu Píludeildar Þórs að Laugargötu 4 Akureyri.

Ef skráning verður mikil gæti þurft að spila einhverjar deildir í aðstöðum pílufélaga sambandsins.

Fjöldi deilda fer eftir skráningu hverju sinni. Hámarksfjöldi í hverri deild eru 9 manns. Ef skráningar ná ekki uppí 9 keppendur í allar deildir fyrir ákveðna umferð þá gæti þurft að breyta fjölda í hverri deild í þeirri umferð en ávallt verður reynt að hafa 8-9 manns í hverri deild í hverri umferð.

Spilað verður 501, best af 7 leggjum í fjórum efstu deildum í karlaflokki en best af 5 leggjum í öðrum deildum. Í öllum kvennadeildum er einnig spilað best af 5. Í Norðaustur deild NOVIS er spilað best af 7 leggjum í efstu deild en best af 5 í öðrum deildum. Allir spila við alla einu sinni og er gefið 1 stig fyrir sigur í hverjum leik. Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild og þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í úrslitaumferðinni falla niður um amk. 1 deild þegar keppni hefst aftur á næsta ári.

Heildarverðlaunafé í úrslitaumferðinni verður 300.000kr og verður því þrepaskipt eftir deildum. Verðlaunafé verður gefið sem inneign hjá ÍPS og má nota uppí kostnað tengdan pílumótum innanlands sem og erlendis.

Nánari upplýsingar og regluverk NOVIS deildarinnar má sjá með því að smella HÉR

Keppendum verður raðað í deildir útfrá meðaltali 5. umferðar. Þeir keppendur sem ekki tóku þátt í fjórðu né fimmtu umferð hefja leik í neðstu deild. Meðaltal keppanda eftir fimmtu umferð, efstu tveir keppendur í öllum deildum sem hafa tryggt sig upp um amk eina deild og þeir tveir keppndur sem falla niður um amk. 1 deild má sjá með því að smella hér:

Úrslit 5. umferð
Heildarmeðaltal eftir 5. umferð

Nánari upplýsingar og skráning hér

 

 

Details

Date:
13. November 2022
Time:
09:00 - 18:00
Cost:
3.500 kr.
Event Categories:
,

Venue

Bullseye
Snorrabraut 37
Reykjavík, Austurbær 105 Iceland
+ Google Map
Phone
4546000
View Venue Website