Aðildarfélög

FÉLÖG

31 pílukastfélög starfa víðs vegar um Ísland, frá höfuðborgarsvæðinu til norðurlands. Saman mynda þau sterkt samfélag með yfir 600 skráða iðkendur sem deila ástríðu fyrir píluíþróttinni.

Hvernig gerist ég félagi?

Til að gerast félagsmaður í Íslenska Pílukastsambandinu þarf að skrá sig í pílukastfélag sem á aðild að ÍPS. Félagsmaður greiðir árgjald til síns félags og greiðir aðildarfélagið síðan félagsgjald til ÍPS fyrir hönd sinna félagsmanna.

Hver félagsmaður getur aðeins verið skráður í eitt aðildarfélag á hverju keppnistímabili og keppir fyrir hönd þess félags á mótum ÍPS.

Hvaða mótum get ég tekið þátt í sem félagsmaður?

Félagsmenn ÍPS geta tekið þátt í þeim mótum sem sambandið stendur fyrir, að uppfylltum aldurs- og þátttökuskilyrðum hvers móts.

Á öldungamótum er lágmarksaldur 50 ár og á Íslandsmóti U18 er aldursbilið 10–18 ára.

Yfirlit yfir öll mót og viðburði á vegum ÍPS má finna hér.

Viltu ganga í félag?

VERTU HLUTI AF SAMFÉLAGINU

Aðild að ÍPS er í gegnum félögin. Veldu félag og skráðu þig beint á mínum síðum. Félagsgjöld eru greidd beint til félagsins.

Viltu stofna nýtt félag? Hafðu samband við okkur.