Íslandsmót Íslenska pílukastsambandsins í 301 DIDO fer fram helgina 12. og 13. desember 2026 á Akureyri í aðstöðu píludeildar Þórs.

Í 301 DIDO byrja keppendur með 301 stig. Þeir þurfa að hitta tvöfaldan reit til að hefja stigagjöf og aftur til að ljúka leggnum á nákvæmlega núlli. Það reynir því á nákvæmnina strax í upphafi og allt þar til síðasta pílan er köstuð.

ÍPS hvetur pílukastara til að taka þátt og býður áhorfendur velkomna að fylgjast með þegar keppt verður um Íslandsmeistaratitilinn í 301 DIDO.

  • Keppni í tvímenning fer fram laugardaginn 12.desember og hefst keppni kl 10:00. Aðstaðan opnar kl 09:00.

  • Keppni í einmenning fer fram sunnudaginn 13.desember og hefst keppni kl 10:00. Aðstaðan opnar kl 09:00.

    Hvað er betra en aðventuferð á Akureyri og taka þátt í Íslandsmóti í 301 í leiðinni.

Skráning fer fram hér: https://dart.is/mot/islandsmot-301-double-in