Íslenska karlalandsliðið í pílukasti hefur tryggt sér sæti í 16 liða úrslitum liðakeppninnar á WDF Europe Cup 2026, sem stendur nú yfir í Færeyjum.

Karlarnir töpuðu fyrsta leik sínum gegn Hollandi en svöruðu því með þremur sigrum í röð gegn Jersey, Möltu og Frakklandi. Þessi góði árangur tryggði liðinu sæti í útsláttarkeppninni, sem heldur áfram í dag, fimmtudaginn 1. október.

Mótið fer fram í íþróttahöllinni Við Tjarnir í Þórshöfn og stendur til laugardagsins 3. október. Þar koma saman um 300 keppendur frá 37 þjóðum til að keppa í einmenningi, tvímenningi og liðakeppni.

Landslið Íslands í karlaflokki skipa:

  • Hallgrímur Egilsson

  • Hörður Guðjónsson

  • Gunnar Ólafsson

  • Alexander Þorvaldsson

Landslið Íslands í kvennaflokki skipa:

  • Sandra Dögg Guðlaugsdóttir

  • Steinunn Dagný Ingvarsdóttir

  • Sara Dögg Margeirsdóttir

  • Barbara Nowak

Með hópnum eru Pétur Rúðrik, landsliðsþjálfari, og Halli Birgis, liðsstjóri.

Í dag er einnig keppt í tvímenningi í opnum flokki og einmenningi kvenna. Á föstudaginn tekur við einmenningur í opnum flokki, tvímenningur kvenna og útsláttarkeppni kvennaliðanna. Úrslitadagurinn er á laugardaginn.

Við hvetjum allt píluáhugafólk til að fylgjast með mótinu og styðja við bakið á íslenska landsliðinu. Hægt er að fylgjast með leikjum og úrslitum á DartConnect.

Áfram Ísland!