Kæru félagar,
Nú stöndum við í því að færa okkur yfir á nýja heimasíðu og eins og einhverjir hafa eflaust tekið eftir fylgja því byrjunarörðugleikar. Við biðjumst velvirðingar á því og erum að vinna í málunum.
Það helsta sem breytist:
Keppendur búa sér til aðgang einu sinni og nota hann eftir það. Þar með er ekki lengur þörf á að fylla út sömu upplýsingarnar fyrir hvert einasta mót.
Kerfið gerir okkur líka kleift að halda utan um gagnagrunn keppenda og birta tölfræði sem hefur einfaldlega ekki verið í boði áður á heimasíðu ÍPS.
Af hverju sumir lentu í veseni:
Félagar voru fluttir sjálfvirkt inn í sína klúbba/aðildarfélög. Það þýðir að margir eru nú þegar til í kerfinu og þegar reynt er að nýskrá sig ofan á þá skráningu stöðvast ferlið. Þetta er ekki þér að kenna, þetta er okkar mál að laga.
Hvað á að gera:
Ef þú ert skráður í félag en færð villu við nýskráningu: Sæktu um virkjun á dart.is/virkja-adgang/bedni og við sendum þér staðfestingarpóst.
Ef þú færð engan póst frá okkur: Athugaðu ruslpósthólfið (spam/junk) eða leitaðu að pósti sem kemur frá dart.is.
Ef þú manst ekki lykilorðið: Notaðu „Gleymt lykilorð“ hlekkinn til að endurstilla það.
Ef ekkert af þessu virkar: Ekki reyna aftur og aftur, heldur sendu okkur línu á dart@dart.is og við klárum þetta handvirkt fyrir þig.
Takk fyrir þolinmæðina á meðan við komum þessu í lag. Þetta verður mun þægilegra þegar allir eru komnir með aðgang.

