Til baka Opin skráning

Flóridana deildin – 7. Umferð

25.–25. október 2026
Bullseye, PFR, Þór

Um mótið

Skráning í 7. umferð Floridana mótaraðarinnar

Það styttist í næstu umferð Floridana mótaraðar Íslenska pílukastsambandsins (ÍPS), en 7. umferð fer fram sunnudaginn 25. október næstkomandi.

Keppt verður á þremur stöðum, á Bullseye og hjá Pílufélagi Reykjavíkur í Reykjavík og í aðstöðu Píludeildar Þórs á Akureyri.

Nú þegar sex umferðum er lokið fer spennan vaxandi í deildunum og ljóst að keppendur munu leggja allt í sölurnar í baráttunni um mikilvæg stig, sæti og framgang milli deilda.

Floridana mótaröðin hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir pílukastara á öllum getustigum. Keppnisfyrirkomulagið tryggir að þátttakendur fái að etja kappi við leikmenn á svipuðu getustigi og gefur jafnframt tækifæri til að vinna sig upp um deildir.

ÍPS hvetur alla pílukastara til að tryggja sér sæti í 7. umferð og taka þátt í skemmtilegum keppnisdegi.

Næsta umferð: 22. nóvember 2026.

Skráningarfrestur rennur út 22.október klukkan 18:00.

Flokkarnir

Höfuðborgarsvæðið

open · singles

Höfuðborgarsvæðið – Kvennadeild

women · singles

Kristalsdeild

open · singles

Norðurland

open · singles

Norðurland – Kvennadeild

women · singles