Um mótið
Íslenska pílukastsambandið (ÍPS) heldur U18 félagsliðamót í fyrsta sinn dagana 3.–4. október 2026.
Mótið fer fram hjá Pílufélagi Akraness.
Mótið verður með sama sniði og Íslandsmót félagsliða fullorðinna, þar sem keppt er í einmenningi, tvímenningi og liðakeppni. Ungir pílukastarar fá því tækifæri til að spreyta sig bæði á eigin vegum og með félögum sínum, auk þess að keppa saman fyrir hönd síns pílufélags.
Húsið opnar kl 10:00
Keppni hefst kl 11:00
Þátttökugjald er 20.000 kr á drengjalið og 10.000 kr á stúlknalið
Keppt verður í einmenning og tvímenning á laugardeginum og liðamóti á sunnudeginum
Í karlalið eru 4 leikmenn og í kvennaflokki eru 2 leikmenn.
Heimilt er að senda tvö karlalið og tvö kvennalið
Þetta er spennandi nýjung í mótahaldi ungmenna hjá ÍPS. Við hvetjum pílufélög um allt land til að taka þátt og mæta með sitt unga pílukastfólk til Akraness.
Skráning fer fram á dart@dart.is
Flokkarnir
u18 · singles
u18 · singles
