Úrvalsdeildin verður aftur á dagskrá í haust, en í þetta sinn verður hún enn stærri og veglegri en í fyrra. Deildin verður tvöfalt stærri í ár en spilaðir verða átta 4 manna riðlar á Bullseye næsta haust í stað fjögurra. Allir leikir verða að sjálfsögðu í þráðbeinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Nánari upplýsingar verða kynntar síðar. ATH! ÍPS áskilur sér rétt á að uppfæra fyrirkomulagið eftir þörfum.
Hér að neðan má sjá hvernig hægt er að tryggja sér þátttökurétt í Úrvalsdeildinni. Listinn verður uppfærður um leið og leikmenn tryggja sér þátttökurétt. Nánari reglur um þátttökurétt er að finna undir töflunni.
Undankeppnir Úrvalsdeildar 2023
Reglur um þátttökurétt:
- Ef leikmaður í 1. sæti RIG (Reykjavík International Games) hefur núþegar tryggt sér þátttökurétt færist plássið í ÍPS val (Wildcard).
- Ef leikmaður í 1. – 7. sæti Gulldeildar – 3. umferð í Novis deildinni hefur núþegar tryggt sér þátttökurétt þá eru næstu sæti sem tekin eru inn í staðinn í eftirfarandi röð:
- 1. sæti – Silfurdeild
- 8. sæti – Gulldeild
Þetta þýðir t.d. að ef Vitor Charrua (sem þegar hefur tryggt sér þátttökurétt) tekur þátt og lendir í 1. – 7. sæti Gulldeildar, 3. umferð NOVIS, þá tryggir 1. sæti í silfurdeild þátttökurétt í Úrvalsdeildinin. Ef fleiri en 2 leikmenn hafa þegar tryggt sér þátttökurétt, þá færast næstu sæti í ÍPS val (Wildcard)
- Ef leikmaður í 1. – 3. sæti Gulldeildar NA – 3. umferð í Novis deildinni hefur núþegar tryggt sér þátttökurétt þá eru næstu sæti sem tekið er inn í staðinn í eftirfarandi röð:
- 4. sæti – Gulldeild NA
- 5. sæti – Gulldeild NA
Ef fleiri en 2 leikmenn hafa þegar tryggt sér þátttökurétt, þá færast næstu sæti í ÍPS val (Wildcard)
- Þrjú bestu meðaltöl kvenna í 3. umferð NOVIS deildar tryggja þátttökurétt í Úrvalsdeild. Meðaltöl gilda í öllum deildum í Reykjavík og Norð-Austur. Ekki verður notast við meðaltöl fyrri umferða NOVIS.
- Ef leikmenn í 1. og 2. sæti í Íslandsmóti karla hafa núþegar tryggt sér þátttökuréttt þá eru næstu sæti sem tekin eru í staðin 3. og 4. sæti í Íslandsmóti. Ef þau sæti hafa líka áður tryggt sér þátttökurétt bætist viðeigandi fjöldi plássa við ÍPS val (Wildcard)
- Ef leikmenn í 1. og/eða 2. sæti í Íslandsmóti kvenna hafa núþegar tryggt sér þátttökuréttt þá eru næstu sæti sem tekin eru í staðin 3. og 4. sæti í Íslandsmóti. Ef þau sæti hafa líka áður tryggt sér þátttökurétt bætist viðeigandi fjöldi plássa við ÍPS val (Wildcard)
- Ef Íslandsmeistarar U18 og U21 hefa þegar tryggt sér þátttökurétt þá er næsta sæti sem tekið er inn 2. sæti í Íslandsmótum U18 og U21. Ef 2. sætið hefur líka áður tryggt sér þátttökurétt bætist viðkomandi pláss í ÍPS val (Wildcard)
- Ef Stigameistari U18 karla hefur núþegar tryggt sér þátttökurétt færist plássið í ÍPS val (Wildcard)
Uppfært 21. maí 2023: Núverandi stigameistari U18 karla er Alexander Veigar Þorvaldsson. Hann hefur núþegar tryggt sér sæti og því færist þetta pláss í ÍPS val. Næsti stigameistari U18 karla verður ekki krýndur fyrr en að lokinni DARTUNG 4 þann 28. október nk. - Ef leikmaður þarf einhverra hluta vegna að afboða þátttöku sína í Úrvalsdeild færist plássið í ÍPS val (Wildcard)
Undankeppnir:
Undankeppnir fara fram í apríl og maí. Allar undankeppnir eru opin mót sem allir félagsmenn í ÍPS geta tekið þátt í. Leikmenn sem hafa núþegar tryggt sér sæti í gegnum NOVIS eða Íslandsmót mega ekki taka þátt í þessum sérstöku undankeppnum aðildarfélaga.
Haldnar verða 6 undankeppnir (2 á höfuðborgarsvæðinu og 4 á landsbyggðinni). Ef undankeppni fellur niður eða ekki næst að halda undankeppni af einhverjum ástæðum, færast þátttökusæti í ÍPS val.
ÍPS val:
ÍPS val (Wildcard) eru sæti sem landsliðsþjálfarar ÍPS velja úr hópi leikmanna sem ekki hafa tryggt sér þáttökurétt í gegnum ÍPS mótin eða undankeppnir aðildarfélaga. Þau sæti verða tilkynnt þann 31. maí 2023.
Í upphafi er um tvö pláss að ræða en líklegt þykir að þeim fjölgi upp í þrjú til fjögur pláss eftir því sem líður á árið ef leikmenn sem hafa þegar tryggt sér þátttökurétt lenda í þátttökurétts-sætum í öðrum mótum.
Athugasemdir eða spurningar má senda á stjórn á dart@dart.is