Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

DARTUNG 1

25. February 2023 kl. 10:00 - 16:00

Free

Íslenska Pílukastsambandið kynnir með stolti DARTUNG, Unglingamótaröð ÍPS og PingPong.is í pílukasti 2023.

DARTUNG 1 verður haldið hjá PFH í Píluklúbbnum Hafnarfirði þann 25. febrúar 2023.  Húsið opnar 10:00 og keppni hefst kl. 11:00

Allir pílukastarar á aldrinum 9-18 ára geta tekið þátt í þessari mótaröð en spiluð verða 4 mót á árinu 2023. Stig verða gefin fyrir árangur og 12 mánaða rúllandi stigalisti mun halda utan um árangur allra keppenda. Dagsetningar allra umferða má finna á viðburðasíðu dart.is

Mótaröðin verður aldurs- og kynjaskipt ef næg þátttaka fæst og spilaðir verða riðlar + útsláttur.

DARTUNG 1 verður skipt í aldurshópana 9-12 ára og 13-18 ára. Miðast er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni. Mótaröðin verður sýnd í beinni útsendingu á heimasíðu ÍPS www.dart.is

Stig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir:

1 sæti: 30 stig
2 sæti: 20 stig
3.-4. sæti: 15 stig
5.-8. sæti: 10 stig
9.-16. sæti: 5 stig

Skráning er hér fyrir neðan og lýkur skráningu föstudaginn 24. febrúar kl. 18:00. Ekkert kostar að taka þátt í DARTUNG mótaröðinni árið 2023 og ekki er gerð krafa að keppendur séu skráðir í aðildarfélag.

Hægt er að sjá skráða keppendur með því að smella HÉR

Details

Date:
25. February 2023
Time:
10:00 - 16:00
Cost:
Free
Event Categories:
,

Venue

Píluklúbburinn Hafnarfirði
Reykjavíkurvegur 64
Hafnarfjörður, 220 Iceland
+ Google Map